Keppni
Barþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA

Elna María Tómasdóttir tekur við viðurkenningunni „Association of the Year“ fyrir hönd Barþjónaklúbbs Íslands á lokahátíð heimsmeistaramóts barþjóna í Macau. Klúbburinn var útnefndur barþjónasamband ársins af International Bartenders Association (IBA).
Barþjónaklúbbur Íslands var útnefndur barþjónasamband ársins hjá International Bartenders Association (IBA) við lokahátíð heimsmeistaramóts barþjóna í Macau 23. október. Klúbburinn hlaut viðurkenninguna „Association of the Year“, sem er ein af sérviðurkenningum samtakanna.
Viðurkenningin var glæsilegur endapunktur á viðburðaríkri viku íslensku barþjónanna í Macau. Viðburðurinn fór fram dagana 19.–24. október, á 75 ára afmælisári IBA. Fyrr í vikunni hafði Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson einnig unnið til verðlauna í Lotus Prestige Cup.
Sjá einnig: Pétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
„Þetta er árangur sem við eigum saman“
„Ég er eiginlega orðlaus. Ég er ótrúlega glaður og það er mikill heiður fyrir okkur að hljóta þessa viðurkenningu. Ég vil þakka öllum sem hafa lagt sitt af mörkum til að gera þetta mögulegt: stjórninni, félagsmönnum, barþjónum, veitingastöðum og börum og öllum okkar samstarfsaðilum.
Þetta er árangur sem við eigum saman og viðurkenning sem allt samfélagið okkar má vera stolt af,“
segir Teitur Riddermann Schiöth, forseti Barþjónaklúbbs Íslands.
Barþjónaklúbbur Íslands hefur starfað frá árinu 1963 og gegnir mikilvægu hlutverki í að efla fagmennsku, fræðslu og samstarf meðal barþjóna á Íslandi. Meðal viðburða á vegum klúbbsins eru Reykjavík Cocktail Week og Íslandsmeistaramót barþjóna.
Pétur vann Xifeng-flokkinn í Lotus Prestige Cup
- Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson með keppnisdrykk sinn í Lotus Prestige Cup í Macau, þar sem hann sigraði í Xifeng-flokknum í klassískri kokteilgerð.
- Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson með verðlaunin sem hann hlaut fyrir sigur í Xifeng-flokknum í klassískri kokteilgerð í Lotus Prestige Cup í Macau.
Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson vann Xifeng-vörumerkjaflokkinn í klassískri kokteilgerð í Lotus Prestige Cup 20. október. Þar var kínverska brennivínið baijiu í aðalhlutverki undir þemanu „Oriental Fusion“.
Keppendum var úthlutað einu af sex baijiu-vörumerkjum og veitt voru sérstök verðlaun innan hvers vörumerkjaflokks, auk heildarverðlauna í klassískri kokteilgerð og flair.
Pétur hlaut verðlaun fyrir besta kokteilinn í Xifeng-flokknum í klassískri kokteilgerð. Verðlaununum fylgdu sigurhringur og 5.000 Hong Kong dalir.
Pétur varð í öðru sæti á Íslandsmeistaramóti barþjóna 2026 fyrir OTO með drykkinn „Atomic Joe“ og hlaut þar einnig viðurkenningu fyrir fagleg vinnubrögð.
Leó kynnti Button-Down á alþjóðasviðinu
- Leó Snæfeld Pálsson við framreiðslu á keppnisdrykknum „Button-Down“ í kaffikokteilaflokki heimsmeistaramóts barþjóna í Macau.
- Leó Snæfeld Pálsson leggur lokahönd á keppnisdrykkinn „Button-Down“ í kaffikokteilaflokki heimsmeistaramóts barþjóna í Macau.
Íslandsmeistarinn Leó Snæfeld Pálsson var fulltrúi Íslands í kaffikokteilaflokki heimsmeistaramótsins með drykkinn „Button-Down“.
Leó komst ekki áfram úr forkeppninni en fékk þar tækifæri til að kynna eigin kokteil á alþjóðlegum vettvangi og etja kappi við fremstu barþjóna heims.
Barþjónaklúbburinn þakkar honum fyrir að hafa verið fulltrúi Íslands á keppnissviðinu og fyrir þá miklu vinnu sem hann lagði í undirbúning og þátttöku.
Leó varð Íslandsmeistari á lokakvöldi Reykjavík Cocktail Week í Gamla Bíói 19. apríl. Þar keppti hann fyrir Jungle með drykkinn „Þriðja kryddið“ og hlaut jafnframt verðlaun fyrir besta drykkinn og besta útlit drykkjar.

Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson (t.v.) og Leó Snæfeld Pálsson, fulltrúar Íslands á heimsmeistaramóti barþjóna og Lotus Prestige Cup í Macau, við íslenska fánann.
Níu manna hópur frá Íslandi
Níu manna hópur frá Íslandi tók þátt í viðburðavikunni í Macau.
Auk keppendanna Leós Snæfelds Pálssonar og Péturs Hafsteins Kolka Úlfssonar voru í hópnum Elna María Tómasdóttir, varaforseti klúbbsins, Auður Gestsdóttir, Rósey Nótt Arnórsdóttir, Grétar Matthíasson, Gísli Stefán Gíslason, Jakub Banas og Árni Gunnarsson.

Íslenski hópurinn í Macau fagnar viðurkenningunni „Association of the Year“, sem Barþjónaklúbbur Íslands hlaut frá International Bartenders Association (IBA). Elna María Tómasdóttir, varaforseti klúbbsins, heldur á verðlaunagripnum.
Viðburðavikan sameinaði keppnir, fagnámskeið, vörusýningu og alþjóðlegt samstarf barþjóna.
Spánn sigraði í klassískri kokteilgerð á heimsmeistaramótinu, Finnland varð í öðru sæti og Slóvenía í því þriðja. Í flair-keppninni sigraði Lettland, Bretland varð í öðru sæti og Sviss í því þriðja.
Nánari upplýsingar um Barþjónaklúbb Íslands má finna á bar.is og Instagram-síðu klúbbsins, @bartendericeland.
Úrslit og verðlaun WCC 2026
Heildarúrslit
- Klassísk kokteilgerð: 1. Spánn, 2. Finnland, 3. Slóvenía.
- Flair: 1. Lettland, 2. Bretland, 3. Sviss.
Verðlaun í drykkjaflokkum
- Fordrykkir (Before Dinner): Lettland.
- Eftirréttadrykkir (After Dinner): Síle.
- Freyðandi kokteilar (Sparkling): Finnland.
- Langir drykkir (Long Drink): Taívan.
- Kaffikokteilar (Coffee): Spánn.
- Tekokteilar (Tea): Serbía.
Sérverðlaun í klassískri kokteilgerð
- Cocktail Art: Japan.
- Besta kynning (Best Presentation): Svíþjóð.
- Tæknileg framkvæmd (Technique): Lúxemborg.
- Þekking (Knowledge): Frakkland.
- Eagle Award: Ekvador.
- Market Challenge: Finnland.
- Semi-final Challenge: Finnland.
Sérverðlaun í flair
- Best Showman: Lettland.
- Besti kokteill (Best Cocktail): Síle.
- Besta skreyting (Best Garnish): Lettland.
- Besta flair-hreyfing (Best Flair Move): Bretland.
- Eagle Award, yngri en 24 ára: Macau.
Önnur sérverðlaun
- Association of the Year / Best Guild: Ísland — Barþjónaklúbbur Íslands.
- Campari Red Heart: Púertó Ríkó.
- Stærsti hópurinn (Largest Delegation): Japan.
Íslensk verðlaun í Lotus Prestige Cup
Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson vann Xifeng-vörumerkjaflokkinn í klassískri kokteilgerð. Lotus Prestige Cup er sérstök keppni sem fór fram samhliða heimsmeistaramóti barþjóna (WCC).
Myndir: Barþjónaklúbbur Íslands
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði








