Vertu memm

Frétt

35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað

Birting:

þann

Sven Erik Renaa, eigandi og matreiðslumeistari þriggja Michelin-stjörnu veitingastaðarins RE-NAA í Stavanger í Noregi.

Sven Erik Renaa, eigandi og matreiðslumeistari þriggja Michelin-stjörnu veitingastaðarins RE-NAA í Stavanger í Noregi.
Mynd: restaurantrenaa.no

Að minnsta kosti 35 gestir veiktust eftir að hafa borðað á hinum virta veitingastað RE-NAA í Stavanger í Noregi, sem státar af þremur Michelin-stjörnum. Gestirnir greindu meðal annars frá miklum uppköstum, niðurgangi, hita og örmögnun. Ekki hefur tekist að staðfesta hvað olli veikindunum.

Greint er frá málinu hjá norska ríkisútvarpinu NRK, sem hefur fengið aðgang að gögnum norska matvælaeftirlitsins, Mattilsynet.

Veikindin komu upp á tveimur tímabilum í byrjun árs, annars vegar dagana 28. til 31. janúar og hins vegar 4. til 6. febrúar.

Alls tilkynntu 21 gestur um veikindi eftir fyrra tímabilið og 14 gestir eftir það síðara.

Í einni tilkynningu til matvælaeftirlitsins kemur fram að átta manna hópur hafi veikst eftir að hafa borðað á veitingastaðnum í lok janúar. Gestirnir höfðu notið 22 rétta matseðils staðarins ásamt drykkjum.

Einn gestanna lýsti miklum uppköstum og niðurgangi um nóttina, auk hita, verkja og mikillar þreytu.

Matreiðslumaður hugsanlega með nóróveiru

Sven Erik Renaa, eigandi og matreiðslumeistari RE-NAA, staðfestir í samtali við NRK að einn matreiðslumaður veitingastaðarins hafi veikst á sama tímabili. Einkennin hafi mögulega stafað af nóróveiru.

Að sögn Renaa fór starfsmaðurinn heim þegar einkenni komu fram og sneri ekki aftur til vinnu fyrr en að loknum tilskildum veikindatíma.

Norska matvælaeftirlitið telur að starfsmaðurinn kunni að hafa verið smitberi, en ekki hefur tekist að staðfesta það.

Einnig hefur verið bent á að mikið hafi verið af skelfiski á matseðlinum og að hann gæti hafa verið möguleg smitleið.

Skelfiskur rannsakaður og húsnæðið þrifið

Sven Erik Renaa, eigandi og matreiðslumeistari þriggja Michelin-stjörnu veitingastaðarins RE-NAA í Stavanger í Noregi.

Mynd: restaurantrenaa.no

Í kjölfar veikindanna greip veitingastaðurinn til ýmissa ráðstafana til að koma í veg fyrir frekari veikindi.

Ákveðnar vörur voru teknar af matseðlinum og skelfiskur sendur í rannsókn. Samkvæmt upplýsingum frá Renaa reyndust sýnin vera í lagi.

Jafnframt var allt húsnæði veitingastaðarins þrifið ítarlega og verklag við meðhöndlun hráefna endurskoðað.

Veitingastaðurinn hefur einnig ákveðið að breyta framreiðslu á hráum skelfiski og ákveðnum lindýrum yfir vetrarmánuðina, frá janúar til apríl.

Engin frávik í almennum rekstri

Norska matvælaeftirlitið gerði úttekt á veitingastaðnum eftir að tilkynningar um veikindin bárust.

Við eftirlitið fundust engin frávik í almennum rekstri staðarins. Niðurstaða eftirlitsins var þó sú að um minniháttar brot væri að ræða, meðal annars vegna þess að opinbera eftirlitsskýrslu vantaði á staðnum.

Sven Erik Renaa segir að allar tilkynningar um veikindi séu teknar alvarlega, en mikilvægt sé að greina á milli þess að gestir hafi tilkynnt um veikindi og þess að staðfest hafi verið hvað olli þeim.

Hann segir jafnframt að veitingastaðurinn leggi áfram ríka áherslu á matvælaöryggi, hreinlæti og gæði.

RE-NAA er einn af aðeins tveimur veitingastöðum í Noregi sem státa af þremur Michelin-stjörnum og sækja matargestir staðinn víða að úr heiminum.

Sven Erik Renaa er mikill Íslandsvinur

Frá verðlaunaafhendingu Food & Fun árið 2014. Frá vinstri: Thomas Lorentzen, Paul Cunningham, Fredrik Log, aðstoðarmaður Sven Erik Renaa, og Sven Erik Renaa, sem hlaut titilinn Food & Fun kokkur ársins 2014.
Mynd: Facebook-síða Food & Fun Festival.

Sven Erik Renaa er mikill Íslandsvinur og hefur í gegnum tíðina tekið þátt í ýmsum matreiðsluviðburðum hér á landi.

Árið 2014 var hann útnefndur Food & Fun kokkur ársins eftir að hafa tekið þátt í matarhátíðinni á veitingastaðnum VOX í Reykjavík. Úrslit keppninnar fóru fram í Hörpu, þar sem Renaa bar sigur úr býtum.

Tveimur árum síðar, árið 2016, var Renaa yfirdómari í keppninni Kokkur ársins, sem einnig fór fram í Hörpu. Þar var það Denis Grbic, þáverandi matreiðslumaður á Grillinu á Hótel Sögu, sem hreppti titilinn.

Hér að neðan má sjá myndband frá Food & Fun hátíðinni árið 2014 sem Bjarni Gunnar Kristinsson tók saman.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið