Vertu memm

Frétt

Brautryðjendur í lífrænni ræktun heiðraðir

Birting:

þann

Brautryðjendur í lífrænni ræktun heiðraðir

Bjarki Pjetursson sérfræðingur á skrifstofu dýraheilsu og landgæða veitti Eymundi Magnússyni viðurkenninguna.

Hjónin Eygló Björk Ólafsdóttir og Eymundur Magnússon hlutu viðurkenningu atvinnuvegaráðherra fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni framleiðslu. Viðurkenningin var afhent á lífræna deginum 19. september sl.

Eygló og Eymundur eru eigendur fyrirtækisins Móðir jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði sem um árabil hefur verið brautryðjandi í lífrænni ræktun og matvælaframleiðslu á Íslandi. Lífræn ræktun í Vallanesi hófst formlega árið 1995 þegar býlið fékk lífræna vottun en ræktun með þeim aðferðum á sér lengri sögu á bænum.

Brautryðjendur í lífrænni ræktun heiðraðir

Í Vallanesi er nú stunduð lífræn ræktun á korni og fjölbreyttu grænmeti, auk fullvinnslu matvæla úr hráefni sem að stórum hluta er ræktað á staðnum. Þar hefur einnig verið lögð áhersla á skógrækt og skjólbelti.

Sérstök áhersla hefur jafnframt verið lögð á að auka notkun íslensks byggs til manneldis og þróa rétti og vörur þar sem þetta næringarríka heilkorn fær að njóta sín.

Brautryðjendur í lífrænni ræktun heiðraðir

Árangur Eyglóar og Eymundar verður ekki aðeins mældur í uppbyggingunni í Vallanesi. Þau hafa rutt brautina í lífrænni ræktun, nýtingu staðbundinna auðlinda og fullvinnslu eigin hráefnis og þannig haft áhrif langt út fyrir eigin starfsemi.

Þau hafa jafnframt miðlað þekkingu á lífrænni framleiðslu og stuðlað að auknum skilningi á möguleikum hennar hér á landi.

Brautryðjendur í lífrænni ræktun heiðraðir

Atvinnuvegaráðuneytið óskaði eftir tilnefningum til verðlaunanna og komu til greina einstaklingar, fyrirtæki og félög sem þykja hafa skarað fram úr á sviði framleiðslu, nýsköpunar, vöruþróunar, markaðssetningar, sölu eða kynningar á lífrænum vörum. Afhending viðurkenningarinnar er hluti af aðgerðaáætlun til eflingar lífrænni framleiðslu.

Eymundur tók við viðurkenningunni fyrir hönd þeirra Eyglóar frá Bjarka Pjeturssyni, sérfræðingi á skrifstofu landgæða og dýraheilsu í atvinnuvegaráðuneytinu.

Myndir: stjornarradid.is / Sigurjón Ragnar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið