Markaðurinn
Iðan Fræðslusetur 20 ára – fullt af tækifærum fyrir fagfólk
Ramen, viskí, gervigreind og 3D-prentun – spennandi haust hjá Iðunni
Iðan fræðslusetur fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og fram undan er einstaklega spennandi haust hjá matvæla- og veitingagreinum. Ný námskeið, erlendir sérfræðingar og viðfangsefni eru á dagskrá
Fjölbreytt haust fram undan
Það verður nóg um að vera hjá matvæla- og veitingagreinum Iðunnar í haust og dagskráin spannar allt frá klassísku handverki yfir í nýja tækni.
Haustið hefst 21. september með Að fanga augnablikið– Betra myndefni, sterkari ímynd, fleiri viðskiptavinir fyrir þá sem vilja bæta myndatökufærni sína og notkun samfélagsmiðla. 24. september Töfrarnir á bak við Dumplings, 2. Október Þrír heimar viskís – Skotland, Japan og Taívan
Það er líka virkilega gaman að kynna nýtt magnað þriggja daga námskeið fyrir félagsfólki um það hvernig gervigreind getur nýst í matvæla- og veitingagreinum Ofurkraftar í matvæla- og veitingagreinum með aðstoð gervigreindar Námskeiðið hefst þann 5. október og er haldið í samstarfi við Akademias.
Í nóvember verður meðal annars boðið upp á Tilraunaeldhúsið – Nútíma matargerðalist 11. nóvember, Meira en salt og límóna – Tequila & Mezcal Masterclass 13. nóvember og Galdurinn á bak við hina fullkomnu Ramen-skál 24. nóvember.
Þetta er þó aðeins hluti dagskrárinnar. Einnig verða námskeið í pylsugerð, hnífabrýnslu, úrbeiningu, fiskflökun, ostum, matvælaöryggi, ofnæmi og sérfæði og fleiru.
Nokkur námskeið haustsins eru þegar fullbókuð og önnur farin að fyllast, þannig að áhugasamir eru hvattir til að bíða ekki of lengi með skráningu.
Og fleira er á leiðinni
Fleiri námskeið eru væntanlegt á þessari haustönn. Meðal námskeiða er Modern Butcher’s Counter, nýtt námskeið fyrir kjötiðnaðarfólk með bresku kjötiðnaðarmeisturunum Ben Tindale og Connor Ringrose, undirbúningi Frá hugmynd að lausn – 3D hönnun og prentun fyrir matvæla- og veitingagreinar, þar sem þátttakendur læra að hanna, þróa og skapa eigin lausnir með 3D-tækni og IBA Foundation Course, 3 daga IBA námskeið fyrir verðandi barþjóna og verðandi sérfræðinga í veitingaþjónustu með John Barreno.
Dagsetningar þessara námskeiða verða kynntar síðar.
Ert þú félagsmaður?
Veistu hvort þú sért félagsmaður Iðunnar og hvaða réttindi þú hefur?
Félagsfólk Iðunnar njóta ýmissa fríðinda þegar kemur að símenntun og verð námskeiða á vef Iðunnar fela í sér allt að 80% niðurgreiðslu.
Ný könnun meðal félagsfólks Iðunnar sýnir að að 61% félagsmanna vita að þeir séu félagsmenn en einungis 10% vita að þeir fá allt að 80% afslátt af öllum námskeiðum Iðunnar
Það er því vel þess virði að kanna réttindin – og nýta þau.
Hvað vilt þú læra næst?
Námskeið Iðunnar eiga að endurspegla þarfir fagfólksins í greinunum og því eru hugmyndir að nýjum námskeiðum alltaf vel þegnar.
Ertu með hugmynd að námskeiði sem þig vantar eða sérðu eitthvað nýtt í faginu sem þér finnst að Iðan ætti að taka upp? Láttu okkur vita.
Ekki missa af því sem er fram undan, skráð þig á póstlista matvæla- og veitingagreina og fáðu fréttir af nýjum námskeiðum og öllu því skemmtilega sem er að gerast, fylgdu okkur á samfélagsmiðlum.
-
Áhugavert2 dagar síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun18 klukkustundir síðanMyndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
-
Markaðurinn6 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Keppni2 dagar síðanJanus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni
-
Frétt1 dagur síðanVeitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
-
Markaðurinn6 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september




