Keppni
Marína Björk bakaranemi sigraði í kleinuhringjakeppninni
Hótel- og matvælaskólinn í Menntaskólanum í Kópavogi fagnaði 30 ára afmæli sínu með fjölbreyttri dagskrá á laugardaginn.
Meðal þess sem fór fram var spennandi kleinuhringjakeppni þar sem glæsilegir og fjölbreyttir kleinuhringir voru bornir fram fyrir dómnefnd.
Í dómnefnd sátu Pétur S. Pétursson, bakarameistari og söluráðgjafi hjá Bako Verslunartækni, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Unnar Þór, verkefnastjóri Samfélagslögreglunnar, og Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.
- Fjölbreyttir kleinuhringir keppenda.
Keppnin var hörkuspennandi en að lokum stóð Marína Björk Halldórsdóttir, bakaranemi hjá Gulla Arnari, uppi sem sigurvegari og hlaut glæsileg verðlaun. Allir keppendur fengu jafnframt gjafapoka frá Bakó Verslunartækni með ýmsum vörum sem nýtast vel við bakaraiðn.

Haraldur Árni Þorvarðarson, fagstjóri bakaradeildar Hótel- og matvælaskólans, afhenti Marínu Björk Halldórsdóttur verðlaunin.
Nýjar rúlluvélar fyrir bakara framtíðarinnar
Bakaraiðndeild skólans tók nýlega í notkun fjórar nýjar RONDO Econom 4000 rúlluvélar frá Bako Verslunartækni. Vélarnar eru nettar en öflugar miðað við stærð og henta því vel við kennslu og þjálfun nemenda.
RONDO hefur verið leiðandi í þróun rúlluvéla og lausna fyrir lagskiptingu deigs frá árinu 1948. Vörumerkið er þekkt fyrir áreiðanleika og endingu.
Undir rúlluvélarnar voru sett sérsmíðuð borð frá Vitrum með fellanlegum hliðum. Sú útfærsla auðveldar flutning vélanna milli rýma og gerir jafnframt mögulegt að taka þær með á sýningar og keppnir.
- Ásgeir Þór Tómasson, bakari og kennari við Hótel- og matvælaskólann.
- Frá vinstri: Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Pétur S. Pétursson, bakarameistari og söluráðgjafi hjá Bakó Verslunartækni, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, og Unnar Þór, verkefnastjóri Samfélagslögreglunnar.
- Allir keppendur fengu gjafapoka frá Bakó Verslunartækni með vörum sem nýtast vel í bakaraiðninni.
- Keppendur í kleinuhringjakeppninni
Meðfylgjandi myndir tók Rúnar Hreinsson, mk.is.
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði










