Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýtt kaffihús opnað við Fjöruböðin á Hauganesi
Gestir sem leggja leið sína í Fjöruböðin á Hauganesi geta nú einnig sest niður á nýju kaffihúsi, en Fjörukaffi opnaði dyr sínar í síðustu viku.
Kaffihúsið er staðsett við Fjöruböðin á Hauganesi á Árskógsströnd í Dalvíkurbyggð, um 24 kílómetra frá Akureyri. Aðeins um tveggja kílómetra akstur er frá afleggjaranum við þjóðveginn að Hauganesi, sem hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem vinsæll áfangastaður jafnt fyrir heimamenn sem ferðafólk.
Á Fjörukaffi er lögð áhersla á notalega stemningu þar sem gestir geta notið útsýnis yfir Eyjafjörðinn á meðan þeir fá sér góðan kaffibolla, smurbrauð, bakkelsi eða kaldan drykk. Kaffihúsið er opið alla daga frá klukkan 12:00 til 20:00.
Fjöruböðin hafa verið í stöðugri uppbyggingu síðustu ár og er opnun kaffihússins nýr áfangi í þeirri vegferð. Samkvæmt áformum verður uppbygging svæðisins áfram umfangsmikil á næstu árum og stefnt er að því að árið 2029 verði meginhluta framkvæmda lokið. Þar er meðal annars gert ráð fyrir stækkun baðanna, nýju hóteli og sumarhúsabyggð.
Með opnun Fjörukaffis bætist því enn ein þjónustan við svæðið og gestum gefst kostur á að njóta bæði baðanna og veitinga í fallegu umhverfi við Eyjafjörð.
Mynd: Facebook / Fjöruböðin
-
Keppni4 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Markaðurinn4 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Markaðurinn6 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt5 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn1 dagur síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu



