Markaðurinn
Nýtt vörumeri hjá Nathan: Musgraves Excellence
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að við höfum tekið inn nýjar og spennandi vörur frá írska matvælarisanum Musgrave. Með þessari frábæru viðbót getum við nú boðið viðskiptavinum okkar upp á enn fjölbreyttara úrval af gæðavörum fyrir stóreldhúsamarkaðinn.
Með fleiri en 14.000 vörur í úrvali ásamt aðgangi að um 40.000 fleiri í gegnum samstarfsaðila sína er Musgraves augljóst val sem framtíðarbirgi hjá Nathan og okkar viðskiptavinum.
Musgrave er eitt stærsta og virtasta matvæla- og heildsölufyrirtæki Írlands, stofnað árið 1876 í Cork af bræðrunum Thomas og Stuart Musgrave og fagnar því 150 ára afmæli sínu árið 2026.
Musgraves er í dag leiðandi afl á matvælamarkaðnum á Írlandi og víðar. Þrátt fyrir gríðarlegan vöxt gegnum áratugina hefur Musgrave ávallt haldið tryggð við sín grunngildi og leggur ríka áherslu á framúrskarandi hráefni og bragðgæði, sjálfbærni í framleiðslu og umhverfisvitund og að styðja vel við bakið á fjölskyldurekstri og nærsamfélaginu.
Vörumerkið Musgrave Excellence er það vörumerki sem Nathan mun leggja áherslu á til að byrja með þar sem góð gæði og verð sameinast í sömu vöru, en einnig munum við bjóða upp á önnur þekkt vörumerki. Viðskiptavinir okkar gera kröfu um gæði og með vörunum frá Musgrave geta þeir treyst því að fá ávallt fyrsta flokks hráefni sem skilar stöðugleika í eldhúsið.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn1 dagur síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Markaðurinn6 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á
-
Frétt5 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt4 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Frétt5 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýtt frá Lavazza | Qualità Oro Dark Roast
-
Frétt2 dagar síðanBrikk súkkulaðikaka innkölluð



