Keppni
Barþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
Barþjónaklúbbur Íslands ætlar að taka á móti sumrinu með sumarpartýi á Petersen Svítunni þriðjudaginn 9. júní næstkomandi. Viðburðurinn hefst klukkan 17 og lofar klúbburinn kvöldi fullt af stemningu, góðum drykkjum og skemmtilegum uppákomum fyrir fagfólk í bar- og veitingageiranum.
Boðið verður upp á pizzur, nachos og drykki á meðan DJ sér um tónlistina fram á kvöld. Þá verða einnig haldnir svokallaðir Fernet Branca Barback-leikar þar sem lið keppa í hraða- og þrautakeppnum sem sækja innblástur í lífið bak við barinn.
Í keppnunum reynir meðal annars á samvinnu, úthald, lipurð og hæfileikann til að halda ró sinni í skipulagðri ringulreið. Fram kemur að glæsileg verðlaun frá Fratelli Branca verði í boði fyrir þau lið sem standa sig best.
Viðburðurinn er ætlaður öllu fólki í geiranum, hvort sem það eru barþjónar, þjónar, kokkar, glasabörn, rekstraraðilar eða þau sem eru ný að stíga sín fyrstu skref í bransanum. Þá segir að kvöldið sé kjörið tækifæri til að kynnast íslensku bar- og veitingasamfélagi betur, hitta fagfólk og upplifa menninguna sem fylgir geiranum.
Skráning í Fernet Branca Barback-leikana og sumarpartýið fer fram á heimasíðu Barþjónaklúbbs Íslands.
Mynd: bar.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSlow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
-
Keppni5 dagar síðanLeitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
-
Starfsmannavelta22 klukkustundir síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Markaðurinn3 dagar síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Markaðurinn4 dagar síðanFljótlegur og bragðmikill taco-réttur fyrir fjölskylduna
-
Frétt23 klukkustundir síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Markaðurinn4 dagar síðanLóan komin og júnítilboðin hjá Nathan líka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFrá eldhúsinu til heimsfrægðar: Anthony Bourdain á hvíta tjaldið



