Frétt
Matvælastofnun varar við neyslu á frosnum nautamaga
Matvælastofnun varar við neyslu á Cow Stomach Abodi (frosin nautamagi) vegna óvissu um örveruástand, sem Fiska.is flytur inn og selur í verslun sinni. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlitið innkallað vöruna.
Tilkynningin barst til Íslands í gegnum hraðviðvörunarkerfi RASFF frá Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Innköllun nær yfir allar framleiðslulotur af þessum matvælum.
- Vörumerki: Afroase
- Vöruheiti: Cow Stomach Abodi
- Best fyrir: Allar dagsetningar
- Nettóþyngd: 1 kg
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Framleiðandi: Asia Express Food, Kilbystraat 1, 8263 CJ Kampen,
- Framleiðsluland: Holland.
- Dreifing: verslun Fiska.is
Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar, farga eða skila til verslunarinnar til að fá endurgreitt.
Mynd: Mast.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanGabríel Kristinn leiðir nýja matarupplifun á Suðurlandi
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanFagmenn úr veitingageiranum hrósuðu matreiðslunemum VMA í hástert – Myndir
-
Frétt4 dagar síðanBrotist inn á veitingastaðinn Glóstein – Kannast einhver við manninn sem braust inn?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÞórir: „Allir eiga að fá tækifæri“
-
Markaðurinn3 dagar síðanHótel Laugarbakki og Hótel Blönduós óska eftir eldhússtarfsfólki í sumar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHallgrímur Friðrik og Kristján Magnússon heiðraðir af KM
-
Keppni2 dagar síðanSkráning er hafin fyrir næsta Arctic Young Chef
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanHagabakarí kveður eftir áratugi í Hraunbergi



