Viðtöl, örfréttir & frumraun
Latínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina
Um næstu helgi sameinar nýi matar- og menningarviðburðurinn Sabor Latino það besta úr mat, tónlist og menningu Mið- og Suður-Ameríku í Kolaportinu, Tryggvagötu 19.
Fremstu götubitavagnar landsins saman komnir
Þrír af fremstu matarvögnum landsins munu leiða saman hesta sína:
Mijita, sem býður upp á kólumbískan mat, ásamt The Food Truck og La Buena Vida, sem bæði koma frá Mexíkó.
Allir þrír vagnarnir hafa verið í fremstu röð á Götubitahátíðinni undanfarin ár. The Food Truck bar sigur úr býtum á hátíðinni í fyrra, La Buena Vida hafnaði í þriðja sæti og Mijita hlaut hin virðulegu „Best in Show“ verðlaun árið 2025.
Auk glæsilegs matarúrvals verður boðið upp á iðandi stemningu, salsadans, lifandi tónlist og fjölbreytta afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Þar á meðal verður hefðbundin piñata og andlitsmálning fyrir yngstu kynslóðina.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir til að njóta og upplifa sanna latínó-stemningu í hjarta Reykjavíkur.
Myndir: aðsendar / Kolaportið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMyndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
-
Áhugavert6 dagar síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanGóðgerðarhlaðborð til stuðnings fjölskyldum í Nepal
-
Keppni5 dagar síðanJanus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni
-
Frétt5 dagar síðanVeitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
-
Keppni4 dagar síðanMarína Björk bakaranemi sigraði í kleinuhringjakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanParís 1920 í aðalhlutverki í árlegum keppnum Garra
-
Markaðurinn4 dagar síðanIðan Fræðslusetur 20 ára – fullt af tækifærum fyrir fagfólk








