Keppni
Fimm tryggja sér sæti í úrslitum Kokk ársins eftir harða forkeppni
Forkeppni Kokk ársins fór fram í IKEA í dag, fimmtudaginn 26. mars, þar sem níu matreiðslumenn kepptu um sæti í lokakeppninni sem fram fer sunnudaginn 29. mars.
Keppnin var afar jöfn og spennandi og tryggðu fimm keppendur sér sæti í úrslitum. Það eru þeir Ísak Aron Jóhannsson, Guðmundur Halldór Bender, Hugi Rafn Stefánsson, Wiktor Pálsson og Hinrik Örn Halldórsson.
Í forkeppninni tóku þátt Ísak Aron Jóhannsson frá Múlakaffi, Ívar Örn Hansen frá Helvítis ehf., Guðmundur Halldór Bender frá Mister Iceland, Hugi Rafn Stefánsson frá Black Sand Hótel, Daníel Cochran Jónsson frá Innnes ehf., Kristín Birta Ólafsdóttir frá Hótel Reykjavík Grand, Wiktor Pálsson frá Nómy veisluþjónustu, Viktor Andri Sigurðsson frá Kol Restaurant og Hinrik Örn Halldórsson frá Lóla Restaurant.
Keppnin var geysi hörð og ljóst að mikil spenna verður í úrslitunum. Úrslit verða kynnt á sunnudagskvöldi á NASA í Hótel Parliament í miðbæ Reykjavíkur.
Á föstudag 27. mars fer fram keppnin um Grænmetiskokk ársins þar sem keppendur eru Bjarni Ingi Sigurgíslason frá Fröken Reykjavík, Rúnar Atli Wiium frá Fiskfélaginu, Þorlákur Sigurðsson frá Lóla, Monica Daniela Panait frá Hótel Geysi og Einar Arnbjargarsson. Keppnin hefst klukkan 11 og lýkur um klukkan 18.
Um helgina verður jafnframt fjölbreytt dagskrá í IKEA. Á laugardag keppa nemar í matreiðslu ásamt aðstoðarmönnum í sjávarréttakeppni.
Mynd: Kokkur ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Keppni1 dagur síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn2 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Markaðurinn2 dagar síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum




