Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Duck & Rose lokar á konudag – nýr staður tekur við undir nafninu Gamla Reykjavík
Veitingastaðurinn Duck & Rose mun loka dyrum sínum að kvöldi konudagsins, 22. febrúar næstkomandi, samkvæmt tilkynningu frá staðnum. Þar með lýkur ákveðnum kafla í sögu staðarins, sem hefur frá upphafi lagt áherslu á stemningu, samveru og metnaðarfulla framreiðslu.
Gestir eru hvattir til að líta við í síðasta sinn í vikunni, njóta andrúmsloftsins og þess sem staðurinn hefur haft upp á að bjóða. Lúxus brunch verður í boði alla daga fram að lokun og stefnt er að því að kveðja með sömu frábæru stemningu og einkennt hefur reksturinn frá fyrsta degi.
Í tilkynningunni kemur fram að nýr staður, Gamla Reykjavík, muni opna á sama stað föstudaginn 27. febrúar. Nánari upplýsingar um nýja staðinn verða kynntar á næstu dögum og eru gestir hvattir til að fylgjast með.
Sérstök athygli er vakin á því að gjafabréfaeigendur eru hvattir til að nýta gjafabréf sín í vikunni, þó munu öll gjafabréf gilda áfram á nýja staðnum sem inneign að upphæð. Þeir sem eiga borðabókanir eftir 22. febrúar þurfa að gera nýjar ráðstafanir, en karaoke-bókanir halda gildi sínu nema óskað sé eftir breytingum.
Að lokum þakkar staðurinn gestum sínum fyrir samfylgdina, hlýjuna og ógleymanlega stemningu á liðnum misserum.
Mynd: Facebook / Duck & Rose
-
Starfsmannavelta5 dagar síðan„Því miður dugði það ekki til“ eigendur Sjávarsetursins tilkynna lokun
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýtt íslenskt kerfi einfaldar máltíðapantanir, dregur úr matarsóun og tengist öðrum kerfum
-
Keppni5 dagar síðanAuddi Blö og Steindi Jr. verða kynnar á úrslitakvöldi Tipsý Bar
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan„Að gefast aldrei upp“, segir Sædís Hui í Bocuse d’Or teyminu
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýtt hjá Garra: Mabrúka, handgerð krydd frá Túnis
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý Cellini kaffihylki – Ítölsk kaffimenning í hverjum bolla
-
Markaðurinn6 dagar síðanÞarf alltaf að kaupa nýtt?
-
Keppni4 dagar síðanKría sigrar með Daydream og tryggir Íslandi sæti í Porto





