Vertu memm

Markaðurinn

Uppskrift: Einföld og fljótleg mexíkósk kjúklingabaka með kotasælu

Birting:

þann

Einföld og fljótleg mexíkósk kjúklingabaka með kotasælu

Það veitir svo sannarlega ekki af því að fá hugmyndir að einföldum og bragðgóðum kvöldmat sem hentar allri fjölskyldunni. Þessi kjúklingabaka er með einfaldari kjúklingaréttum sem hægt er að útbúa og að auki er hann ótrúlega góður og stútfullur af próteini.

Það er hægt að flýta enn meira fyrir sér og nota kjöt af tilbúnum kjúklingi sem hægt er að grípa með sér í mörgum verslunum eða jafnvel nota afganga sem gætu leynst í kælinum.

Kotasælan og rjómaosturinn sjá til þess að rétturinn sé extra djúsí og próteinríkur.

Innihald:

500 g kotasæla frá MS

100 g rjómaostur með svörtum pipar

1 bréf tacokrydd

350 g eldaður kjúklingur, rifinn

85 g maískorn

½ rauð paprika

7 cm blaðlaukur, græni hlutinn

50 g rifinn ostur

Ofan á:

100 g rifinn ostur

50 g mexíkósk rifin ostablanda

Nokkrar nachosflögur, muldar

Ferskt kóríander, má sleppa

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 210°C blástur.
  2. Rífið niður kjúklinginn og skerið grænmetið. Ég notaði eldaðar kjúklingabringur en það er einnig ljómandi gott að nota kjöt af tilbúnum elduðum kjúkling.
  3. Setjið kotasælu, rjómaost og tacokrydd saman í skál og blandið saman með töfrasprota.
  4. Blandið kjúklingnum, rifna ostinum og grænmetinu saman við kotasælublönduna.
  5. Smyrjið út í eldfast form og toppið með rifnum ostur, mexíkóskri ostablöndu og muldum nachos flögum.
  6. Bakið í ofni í 25-30 mín. Takið fatið út og stráið söxuðu fersku kóríander yfir ef vill.
  7. Berið fram með hrísgrjónum, nachosflögum, maískorni, salsa, sýrðum rjóma og fersku kóríander

Skoða nánar á www.gottimatinn.is

Einföld og fljótleg mexíkósk kjúklingabaka með kotasælu

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið