Smári Valtýr Sæbjörnsson
Mikið álag hjá Domino’s – 450 manns á vakt
Þjóðin kýs að sleppa við eldamennsku og einbeita sér að landsleiknum en Domino‘s hefur aldrei fengið jafn margar pantanir líkt og í kvöld, og þó hefur gengið vel að standa við uppgefna biðtíma, en lengsti biðtími var 120 mín og hvorki meira né minna en 450 manns á vakt.
Pantanafjöldinn síðustu þrjá klukkutímanna er án fordæma í sögu Domino‘s á Íslandi. Tugþúsundir hafa reynt að panta pítsur hjá fyrirtækinu á sama tíma. Heimasíðan er undir miklu álagi, sem og pantana-app fyrirtækisins og þjónustuver. 160 símalínur eru í þjónustuveri fyrirtækisins og hafa þær allar verið uppteknar síðasta klukkutímann. Ekkert kvöld er sambærilegt, hvorki Eurovision né fyrri íþróttaleikir hafa leitt til jafn mikils álags.
Domino‘s vill koma því á framfæri að fyrirtækið hafði undirbúið sig vel fyrir þennan dag en fjöldinn er samt töluvert meiri en búist hafði verið. Starfsfólk Domino‘s vildi alls ekki gera neitt til að skemma þetta sögulega kvöld fyrir viðskiptavinum en mjög vandasamt er að afgreiða þetta mikla magn pantana á svo skömmum tíma. Biðtímar urðu því mun lengri í kvöld en annars er vaninn hjá fyrirtækinu og var lengsta biðin upp í 120 mínútur í sumum hverfum. Þess má geta að afkastageta á hvern útsölustað er meiri hér á landi en í öðrum löndum.
Stjórnendur eru ánægðir með að tekist hefur að standa við uppgefna biðtíma, bæði í heimsendingu og þegar sótt er á staðinn. Nokkuð sem getur verið mjög vandasamt á „sprengjukvöldum“ eins og þessu.
Myndir: aðsendar
![]()
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanSex nýir komust í hóp þeirra 299 sem bera virtasta titil vínþjóna í heiminum
-
Frétt7 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt6 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð
-
Frétt5 dagar síðanEndurbyggðu veitingastaðinn frá grunni eftir brunann
-
Frétt10 klukkustundir síðanEinkakokkar meðal eftirsóttustu matreiðslumanna heims
-
Frétt2 dagar síðanÍslenskir veitingastaðir sagðir of tregir til að hækka verð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanRoyal Palm South Beach opnar á ný eftir 12,5 milljarða króna endurbætur
-
Frétt12 klukkustundir síðanVanmerkt pestósósa innkölluð úr verslunum Krónunnar



