Frétt
Vinna hafin við mótun matvælastefnu fyrir Ísland
Á Íslandi eru um margt kjöraðstæður til að framleiða matvörur af miklum gæðum – þökk sé hreinu vatni, jarðvegi og lofti, ríkulegu lífríki í hafinu, umhverfisvænum orkugjöfum og dýrmætri matarhefð.
Í fréttatilkynningu frá Stjórnarráði Íslands segir að mikil sóknarfæri eru til frekari verðmætasköpunar og hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sett á fót verkefnisstjórn sem hefur það hlutverk að móta matvælastefnu fyrir Ísland. Matvælastefnan skal liggja fyrir í árslok 2019. Með matvælastefnunni skulu fylgja tillögur að aðgerðaáætlun til innleiðingar stefnunnar fyrir íslenskt atvinnulíf og stjórnkerfi.
Verkefnisstjórnina skipa:
- Vala Pálsdóttir, formaður, skipuð af ráðherra
- Ingi Björn Sigurðsson, skipaður af ráðherra
- Ragnheiður Héðinsdóttir tilnefnd af Samtökum iðnaðarins
- Anna Guðmundsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
- Sigurður Eyþórsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
Verkefnastjórar koma frá Matís og auk þess mun Matarauður Íslands eiga áheyrnarfulltrúa.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að Ísland skuli vera leiðandi í framleiðslu á heilnæmum landbúnaðarafurðum og tryggð verði áframhaldandi samkeppnishæfni sjávarútvegs á alþjóðlegum mörkuðum. Þá beri að nýta tækifæri sem byggjast á áhuga á matarmenningu með sjálfbærni og gæði að leiðarljósi, þróa á lífhagkerfið enn frekar og stuðla að nýsköpun og vöruþróun til að auka virði afurða og byggðafestu.
Verkefnisstjórnin mun hafa eftirfarandi þætti að leiðarljósi við mótun matvælastefnunnar.
- Stuðla að sjálfbærri matvælaframleiðslu í gegnum virðiskeðjuna
- Bætt aðgengi að hollum matvælum með áherslu á lýðheilsu
- Nýsköpun, vöruþróun og virðissköpun í virðiskeðjunni
- Uppruna matvæla, merkingar og matvæla öryggi
- Aðgengi að upplýsingum og gegnsæi
- Mikilvægi þess að draga úr matarsóun
- Samkeppnishæfni á alþjóðlegum markaði
Mynd: úr safni
-
Markaðurinn2 dagar síðanSupermeals kynnir nýja eiginleika sem einfalda birtingu matseðla og straumlínulagaða skráningu viðskiptavina
-
Keppni3 dagar síðanÞrjátíu ár við stjórnvölinn – Bjarki Hilmarsson heiðraður
-
Keppni4 dagar síðanÍsak Aron Jóhannsson er Kokkur ársins 2026 – úrslit úr öllum keppnum
-
Keppni2 dagar síðanSkráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMichelin-kvöld á Moss með Tom Aikens og Marqués de Murrieta
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun19 klukkustundir síðanPizza pop-up og sultukynning frá Helvítis Kokkinum á Norðurlandi
-
Markaðurinn3 dagar síðanNý hnífataska frá Beittum hnífum
-
Markaðurinn2 dagar síðanMötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin





