Uncategorized
Vín frá Nýja Sjálandi eru að sýna sig aftur!!
Fyrir nokkrum árum var ekki talað um annað hjá vínáhugamönnum hér á landi en Ný Sjálensk vín. Fullt af virkilega góðum framleiðendum kom á markaðinn meðal annars
, Stoneleigh og Montana og svo seinna Babich. En einhvern veginn datt botninn úr. Vínáhugafólk fór yfir í eitthvað annað og nýrri vín á Íslandi og virtist hafa gleymt þessum ágætis vínum frá Nýja Sjálandi. En það virðist vera að fólk er farið að muna eftir þessu ágætis svæði aftur. Salan á vínunum er ekki gríðarleg en samt stöðug, gæðin hafa aldrei verið betri og verðið hefur haldist nánast óbreytt.
Ekki bara Sauvignon Blanc.
Þó að margir vilji meina að ekkert svæði í nýja heiminum búi til betri Sauvignon Blanc, eru Ný Sjálenskir framleiðendur að gera mjög góða hluti með aðrar vínþrúgur og sem dæmi er hægt að nefna tísku vínþrúgan í dag Pinot Noir. Annað sem flestir vínframleiðendur þar á bæ eru að gera er að setja screw cap á allar vínflöskur, og því ekki? Flest vínin þeirra eru ætluð til þess að drekka ung.
Nýlega fékk ég að smakka vín frá Saint Clair vínframleiðandanum. Línan sem ég smakkaði heitir Vicar´s Choice og í heild voru gæðin mjög góð sérstaklega miðað við verðið. Vínin byrjuðu í reynslusölu 1. júní og ég lít á þau sem tilvalin sumarvín.
Hægt er að skoða lýsingar og niðurstöður hér á Smakkarinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn3 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni4 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins



