Sverrir Halldórsson
Vildu ekki launalækkun og fengu uppsagnarbréf
Hundruð opinberra starfsmanna sniðgengu mötuneytið í Borgartúni 21 í dag til þess að sýna samstöðu með tveimur konum sem störfuðu í mötuneytinu en var sagt upp á dögunum þar sem þær sættu sig ekki við launalækkun upp á tugi þúsunda. Í hádeginu á venjulegum miðvikudegi snæða yfir hundrað manns í mötuneytinu en þegar blaðamaður DV leit þar við í hádeginu í dag voru ekki fleiri en tíu að fá sér að borða.
Í Borgartúni 21 hafa fjölmargar stofnanir aðsetur eins og Barnaverndarstofa, Þjóðskrá Íslands, Hagstofa Íslands, Neytendastofa, Íbúðalánasjóður, Ríkissáttasemjari, Yfirskattanefnd og Fjölmiðlanefnd.
Mötuneytið er rekið af fyrirtækinu ISS sem sérhæfir sig í slíkum rekstri en samkvæmt heimildum DV spurðist það fljótt út um húsið þegar konunum var sagt upp. Af því tilefni ákváðu yfir hundrað starfsmenn að snæða annars staðar í hádeginu í dag og þannig mótmæla þeirri ákvörðun ISS að segja þeim upp. Konurnar höfðu starfað í mötuneytinu í þó nokkurn tíma og voru þekktar fyrir frábæra þjónustulund á meðal starfsmanna í húsinu, að því er fram kemur á dv.is.
Nánari umfjöllun er hægt að lesa á vef dv.is með því að smella hér.
Mynd: skjáskot af google korti.
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Keppni2 dagar síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn6 dagar síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Markaðurinn2 dagar síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMichel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 klukkustundir síðanReynir Grétarsson opnar Dinner á LYST á Akureyri – „Við viljum hækka standardinn aðeins í mat og þjónustu.“




