Vín, drykkir og keppni
Verðlaunavín Gyllta Glasið 2023 – Fyrri partur
Nú er nýlokin keppnin um Gyllta Glasið 2023 sem var er undir stjórn Vínþjónasamtaka Íslands. Verðflokkur vína í keppni í ár er frá 2.490 kr til 4.000 kr og völdu vínbirgjar vínin til í þessa keppni.
Í þessum fyrri parti voru vín frá suður við miðbaug tekinn fyrir ásamt Norður Ameríku ásamt sérstökum rósavínsflokki, en þar var ekkert verðþak og máttu vínin koma hvaðan sem er úr heiminum, þurftu bara vera árgangsmerkt.
Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin boðuðu til á Grand Hótel 14.maí sl. og eigum við í Vínþjónasamtökunum þeirra allra bestu þakkir fyrir aðstoðina.
Yfirdómari var eins og fyrri ár Alba E H Hough margfaldur Íslandsmeistari vínþjóna ásamt sérstakri aðstoð frá vel völdu fagfólki og eiga þau þakkir fyrir að standa að stærstu blindmökkum sem fram fer á Íslandi ár hvert.
5 hvítvín, 10 rauðvín og 4 rósavín hlutu Gyllta glasið 2023 samkvæmt hlutföllum sem skiluðu sér. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta Glassins og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin.
Verðlaunavínin
Hvítvín:
Vicar’s Choice Sauvignon Blanc 2022, 2.899 kr
Aresti Trisquel Sauginon Blanc Gran Reserva 2022, 3.399 kr
Villa Maria Sauvignon Blanc Private Bin 2021, 3.492 kr
Villa Maria Chardonnay Gisborne Private Bin 2020, 2.874 kr
Marques Casa Concha Chardonnay 2021, 3.499 kr
Rósavín:
Villa Wolf Pinot Noir Rose 2022, 2.499 kr
Tommasi Rose Le Fornaci 2022, 2.999 kr
Fleurs de Prairie 2022, 2.799 kr
Beronia Rose 2019, 2.874 kr
Rauðvín:
Zuccardi Q Malbec 2021, 3,813 kr
Vinyes Ocults Malbec 2019, 3.690 kr
Alamos Malbec 2022, 2.890 kr
Bellingham Pinotage 2020, 3.090 kr
Saint Clair Pioneer Block 17 Syrah 2018, 3.599 kr
Marques Casa Concha Etiqueta Negra 2019, 3.999 kr
Trivento Cabernet Sauvignon Reserve 2021, 2.499 kr
Nederburg Cabernet Sauvignon The Winemasters 2021, 2.499 kr
Montes Cabernet Sauvignon Carmenere Limited Selection 2022, 2.599 kr
Montes Cabernet Sauvignon Reserva 2022, 2.599 kr
Vínþjónasamtök Íslands
Vínþjónasamtökin vilja þakka sérstaklega öllum dómurum og birgjum fyrir frábæra þáttöku og óskum við sigurvegurum til hamingju.
f.h. Vínþjónasamtaka Íslands
Tolli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn1 dagur síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Frétt7 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun11 klukkustundir síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn1 dagur síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum






