Vertu memm

Markaðurinn

Verðlaunaskyr á leið í verslanir

Birting:

þann

Verðlaunaskyr á leið í verslanir - Ísey skyr mokka

Ísey skyr kynnir nýja og seiðandi sérútgáfu sem gleður bragðlaukana en um er að ræða meiriháttar mokkaskyr sem verður aðeins á markaði í takmarkaðan tíma. Nýja mokkaskyrið hlaut titilinn Besta mjólkurvaran í flokki neysluvara á alþjóðlegu matvælasýningunni International Food Contest í haust og sigraði þann flokk með glæsibrag.

Fram til þessa hefur Ísey skyr mokka aðeins verið fáanlegt á erlendum mörkuðum og því einkar ánægjulegt að geta nú loksins boðið upp á það hér heima.

Við vonum að skyrunnendur taki vel á móti verðlaunaskyrinu okkar sem er á leið í verslanir en líkt og annað Ísey skyr er mokkaskyrið silkimjúkt, próteinríkt og stútfullt af næringarefnum. Nýja dósin er auðþekkjanleg þar sem Skógarfoss skartar sínu fegursta á umbúðunum en það hefur verið eitt af sérkennum Ísey skyr sérútgáfanna að gera íslenskri náttúru hátt undir höfði.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið