Viðtöl, örfréttir & frumraun
Veitingastaðir opna á ný – Matarvagnar blómstra í Covid-19 ástandinu
Grillmarkaðurinn og Sjávargrillið opnar aftur í dag miðvikudaginn 22. apríl eftir langþráða bið. Fiskfélagið opnaði 17. apríl s.l. SKÁL! á Hlemmi opnar að öllum líkindum 4. maí, en býður núna upp á heimsendingar. Matarkjallarinn opnar aftur fyrir gesti í sal á Sumardaginn fyrsta.
Rétturinn í Keflavík opnaði 14. apríl s.l. Höfnin hefur opnað aftur eftir tiltektaræði sem rann á mannskapinn og vegna hinna sérstöku aðstæðna verður opnunartíminn aðeins styttri en vanalega. ROK við Frakkastíg 26a í Reykjavík hefur opnað aftur. Veitingastaðurinn Englendingavík í Borgarnesi opnar í byrjun maí n.k.
KRYDD Veitingahús í Hafnarfirði hefur opnað á ný í sal og Take Away.
American Style er opið á Bíldshöfða og Nýbýlavegi, en lokað á Dalshrauni og í Skipholti. Hótel Geysir mun opna í lok apríl.
Óvíst er um opnun á Grillinu á Hótel Sögu, en eins og staðan er núna verður það ekki á næstunni, segir Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstjóri á Sögu í samtali við Morgunblaðið. Veitingastaðurinn Torgið á Siglufirði mun opna í lok maí. Sigló Hótel á Siglufirði hefur verið lokað tímabundið og ætla rekstraraðilar að nota tímann að þrífa og pússa hvert horn hótelsins.
Matarvagnar hafa blómstrað í Covid-19 ástandinu og hafa ferðast um alla borgina undir yfirskriftinni „Mathöll á hjólum“.
Fjölmargir aðrir veitingastaðir og útibú þess voru lokaðir vegna Covid-19 ástandsins, Saffran á Bíldshöfða, Hamborgarafabrikkan, Aktu Taktu, Eldsmiðjan, Keiluhöllin, Shake & Pizza, Pítan, Roadhouse, Café París, Apótekið, Narfeyrarstofa og Kaffivagninn. Enginn af þessum veitingastöðum hefur tilkynnt um formlega opnun á ný, en allir voru lokaðir tímabundið og bjóða upp á take away þjónustu í Covid-19 ástandinu.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanTímamót fyrir íslenska barþjóna með nýjum samstarfssamningi
-
Kokkalandsliðið3 dagar síðanNýr þjálfari kokkalandsliðsins, Georg Arnar leiðir liðið til Lúxemborgar 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMatarmarkaður Íslands í Hörpu um helgina, fjölbreyttur markaður fyrir veisluborðið og jólagjafir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 klukkustundir síðanÍsland tók yfir eldhúsið á VOX þegar Sævar Lárusson og Rúrik mættu til leiks
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanEr þetta besta jólatréð í bænum, á bragðið? – Vídeó
-
Keppni3 dagar síðanWoodford Reserve Old Fashioned Week haldin í fyrsta sinn á Íslandi – Myndir
-
Markaðurinn4 dagar síðanOpnunartími Innnes um jólahátíðina – Innnes opening hours during the Christmas holidays
-
Frétt5 dagar síðanAsahi varð fyrir stórfelldri netárás, allt að 1,5 milljón viðskiptavina í hættu






