Sverrir Halldórsson
Veitingastaðir Hrefnu Sætran skila góðum arði
Hagnaður var af rekstri bæði Fiskmarkaðarins og Grillmarkaðarins á síðasta ári og er gert ráð fyrir arðgreiðslum vegna rekstursins. Fiskmarkaðurinn skilaði 34,8 milljóna króna hagnaði á árinu 2012 og Grillmarkaðurinn 32,6 milljóna hagnaði. Þetta kemur fram í ársreikningum fyrirtækjanna. Hrefna Rósa Sætran á 50% hlut í fyrrnefnda félaginu sem síðan á 50% hlut í því síðarnefnda. Ágúst Reynisson á 50% hlut í Fiskmarkaðnum á móti Hrefnu.
Samkvæmt ársreikningunum er ráðgert að Fiskmarkaðurinn greiði 11 milljónir í arð og Grillmarkaðurinn 8 milljónir vegna reksturs ársins 2012. Fiskmarkaðurinn greiddi 5,4 milljónir í arð á síðasta ári en 23,5 milljónir árið 2011 til hluthafa félagsins, að því er fram kemur á vb.is.
Mynd úr safni: Guðjón Steinsson
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn2 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn3 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn1 dagur síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Frétt10 klukkustundir síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni15 klukkustundir síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins




