Nemendur & nemakeppni
Úr fjölmiðlafræði og sölumennsku í kokkanám
Óðinn Stefánsson, 34 ára gamall Akureyringur, er ekki einn um það að skipta um skoðun út í miðri á. Það er ekki ofsögum sagt að hann hafi tekið sannkallaða u-beygju í námi. Fór í fjölmiðlafræði og var hársbreidd frá því að klára hana en fór að lokum í kokkanám.
Óðinn brautskráðist af félagsfræðibraut frá Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA) árið 2008. Eftir það starfaði hann hjá lítilli heildsölu í Reykjavík og notaði tímann til þess að átta sig á því í hvaða nám hann vildi fara. Niðurstaðan var fjölmiðlafræði í Háskólanum á Akureyri haustið 2009. Til hliðar við námið starfaði Óðinn sem sölumaður hjá heildsölunni O. Johnson & Kaaber. Undir lok námsins segist Óðinn hafa misst áhugann á fjölmiðlafræðinni, í raun eigi hann lítið eftir nema lokaritgerðina til þess að ljúka BA-námi í fjölmiðlafræði.
Óðinn fór út á vinnumarkaðinn og starfaði bæði í Reykjavík og á Akureyri sem sölumaður fyrir Ó. Johnson & Kaaber, samtals í áratug. Hjá fyrirtækinu störfuðu nokkrir matreiðslumenn sem seldu meðal annars stóreldhúsum vörur og þá kviknaði áhugi Óðins á að læra matreiðslu. Það varð úr, hann tók grunndeild matvæla í VMA sl. vetur og fór jafnframt á samning í matreiðslu hjá Bautanum. Þegar síðan var ákveðið að bjóða upp á annan bekkinn í matreiðslu í vetur í VMA innritaði Óðinn sig í hann og lýkur honum um jól. Eftir sem áður starfar hann á Bautanum og þarf að vinna töluvert til viðbótar á samningnum til þess að geta farið í þriðja bekkinn og lokið sveinsprófi. En þangað segist Óðinn stefna, matreiðslan sé skemmtileg og áhugaverð glíma. Þetta sé aksjónstarf og óneitanlega fylgi því oft álag, eins og í öðrum störfum, en stress upplifi hann þó ekki í starfinu.
Mynd: vma.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn2 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn1 dagur síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni3 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn1 dagur síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn3 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins




