Freisting
Tyrkneskir veitingastaðir í vanda: Allt innifalið drepur viðskiptin

Það færist í vöxt að tyrknesk hótel bjóði viðskiptavinum sínum upp á pakka þar sem allt er innifalið. Tyrkneskir veitingamenn eru ekki ánægðir með þróunina sem þeir segja ógn við veitingahúsarekstur landsins þar sem ferðamenn fara varla lengur út að borða heldur hangi á hlaðborðum hótelanna.
Norska Dagbladet birti nýlega grein um vanda veitingastaða í tyrkneskum ferðamannabæum en þar segir að hótelin séu að drepa staðbundna veitingastaði með því að bjóða gestum sínum upp á svokallaða all inclusive pakka með gistingu, fæði og drykkjum.
Í greininni er m.a. vitnað í veitingamann í ferðamannabænum Side sem segir að miðbærinn sé ekki svipur hjá sjón. Þar sem áður var líflegt mannlíf og veitingahúsalíf sést nú varla fólk, því allir ferðamennirnir drífa sig beint upp á hótel til að borða þar af hlaðborðum. Þessi þróun sé virkileg ógn við menningu svæðisins.
Að sögn Dagbladet eru þó ferðamennirnir glaðir því þeir fá enga bakreikninga eftir sumarfríð þar sem allt er innifalið. Geta þeir sparað mörg þúsund krónur á því að taka slíku tilboði.
Greint frá á Pressan.is
-
Markaðurinn3 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni4 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn3 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt5 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn
-
Frétt2 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað


