Nemendur & nemakeppni
Þrettán nemendur hefja nám í matartækni í VMA
Þrettán nemendur hefja nám í matartækni í Verkmenntaskólanum á Akureyri (VMA) núna á vorönn. Námið er sett upp sem lotunám og þess á milli eru nemendur í bóklegum fögum í fjarnámi og einnig eru unnin verkefni. Í það heila tekur námið þrjár annir og því lýkur með brautskráningu vorið 2025.
Marína Sigurgeirsdóttir kennari við matvælabraut VMA er aðalkennari og hefur umsjón með náminu en auk hennar kennir Ari Hallgrímsson, brautarstjóri matvælabrautar. Núna á vorönn eru bæði kenndar bóklegar og verklegar greinar í fimm helgarlotum, sú fyrsta verður síðustu helgina í janúar. Í lotunum er kennt frá kl. 13 á föstudögum og kl. 8 til 16:30 á laugardögum.
Í gegnum tíðina hafa nemendur víða að af landinu sótt nám í matartækni í VMA en að þessu sinni eru allir þrettán nemendurnir af Eyjafjarðarsvæðinu og eru þeir á aldursbilinu 30-57 ára. Einn þeirra hefur lokið grunndeild matvæla í VMA en aðrir hafa farið í gegnum raunfærnimat og þannig komist inn í þetta nám.
Skilyrði fyrir raunfærnimati er að viðkomandi hafi starfað að lágmarki í þrjú ár í mötuneyti eða veitingarekstri – og á þetta við um alla þá sem nú hefja nám í matartækni. Auk fagnáms í verklegum og bóklegum áföngum sem nemendur taka í lotum og fjarnámi VMA þurfa þeir að hafa lokið áföngum í íslensku, ensku og stærðfræði á öðru þrepi.
Að brautskráningu lokinni er sótt um leyfisbréf og þar með starfsréttindi sem matartæknar til landlæknisembættisins. Í því felst m.a. heimild til þess að bera ábyrgð á rekstri mötuneyta.
Mynd: vma.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun19 klukkustundir síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn4 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn3 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt7 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Keppni3 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Keppni3 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september




