Frétt
Þetta fá ríkisstarfsmenn í dagpeninga fyrir gistingu og fæði
Ferðakostnaðarnefnd Fjármála- og efnahagsráðuneytisins hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
| 1. Gisting og fæði í einn sólarhring | kr. 42.400 |
| 2. Gisting í einn sólarhring | kr. 28.800 |
| 3. Fæði hvern heilan dg, minnst 10 tíma ferðalag | kr. 13.600 |
| 4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag | kr. 6.800 |
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. maí 2022. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2021 dags. 28. september 2021.
Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki til að útlagður kostnaður sé sem næst viðmiðunarfjárhæðum.
Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn3 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn5 dagar síðanLíður að jólum




