Vertu memm

Keppni

Þessir keppa um titilinn Kokkur ársins 2024

Birting:

þann

Kokkur ársins 2023

Frá keppninni í fyrra.
F.v. Bjarki Ingþór Hilmarsson, Þórir Erlingsson og Árni Þór Arnórsson

Í dag fór fram forkeppni fyrir keppnina um Kokk ársins 2024 sem haldin verður í Ikea laugardaginn 13. apríl.

Verkefni dagsins var að elda kjúklingabringu og kjuklingalegg.  Það voru sjö keppendur sem tóku þátt í forkeppninni og komust 5 þeirra áfram.

Keppendurnir sem komust áfram voru:

Wiktor Pálsson – Speilsalen

Ísak Aron Jóhannsson – Zak veitingar

Hinrik Örn Lárusson – Lux veitingar

Hinrik Örn Halldórsson – Flóra Veitingar

Bjarni Ingi Sigurgíslason – Kol

Eftir að tilkynnt var hverjir kæmust áfram voru skylduhráefni laugardagsins kynnt, en þau eru:

Forréttur:

Andar egg

Gullauga kartöflur

Skyr

Aðalréttur:

Lambahryggur 3.5 kg.

Villtur hvítlaukur ( Ramson lauf)

Smjördeig

Eftirréttur:

Krækjuberjasafi

Cacao barry Súkkulaði hvítt Zephyr 34%

Söl

Næsta verkefni keppenda er að skila inn matseðili en það þurfa þeir að gera fyrir kl 19.00 í dag fimmtudag. Það verður spennandi að fylgjast með keppendum spreita sig á þessum hráefnum.

Grænmetis Kokkur ársins 2024

Á morgun föstudag fer fram í fyrst skipti keppnin um Grænmetiskokk ársins, þar eru fimm keppendur skráðir til leiks en þeir eru:

Bjarki Snær Þorsteinsson, Lux veitingar

Bjarni Haukur Guðnason, Hvíta húsið

Kristján Þór Bender Eðvarðsson, Bláa Lónið

Þórarinn Eggertsson, Smakk veitingar

Monica Daniela Panait, Hótel Geysir

Keppendur hafa 5 klukkutíma til undirbúnings og verða ræstir með 5 mínútna millibili.

Eldaður er þriggja rétta matseðil fyrir 12 manns sem samanstendur af eftirfarandi grunn hráefnum:

Forréttur:

Egg 40%

Grænn franskur Aspas

Aðalréttur:

Gulrætur 40%

Pólenta

Kantarellur

Eftirréttur:

Ananas

Sýrður Rjómi

Úrslit í öllum keppnum verða tilynnt í IKEA eftir kl 18:00 á laugardaginn.

Mynd: Mummi Lú

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið