Freisting
Tekur Jón Indíafari við rekstur mötuneytis Súðavíkurskóla?
Súðavíkurhreppur hefur ákveðið að ganga til viðræðna við Jón Indíafara í Súðavík um að veitingastaðurinn taki að sér rekstur mötuneytis fyrir Súðavíkurskóla.
Við höfum rætt óformlega um þetta og það er áhugi þeim megin að taka við þessu. Þarna er fullbúinn matsölustaður með tækjum og tólum sem er að gera góða hluti á sumrin en annan tíma árs er ekki eins mikið að gera. Með þessu værum við hjá Súðavíkurhreppi að renna styrkari stoðum undir reksturinn allt árið í kring og sjáum við því samfélagslega hagræðingu í þessu. Fyrir utan að líklega myndi þarna skapast eitt starf, segir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Á fundi sveitarstjórnar í gær var samþykkt að ganga til viðræðna við aðstandendur Jón Indíafara.
Næsta skref er að fara í viðræður við Jón Indíafara um hvernig væri hægt að útfæra þjónustuna. Slíkt samkomulag myndi jafnframt skapa ýmis önnur tækifæri. T.d. væri hægt að bjóða starfsmönnum Frosta upp á matarpakka en við sjáum fram á að þar muni starfa um 40 manns von bráðar, segir Ómar. Þá hefur orðið fjölgun bæði í grunn- og leikskóla sveitarfélagsins og því þörf á að endurskoða mál mötuneytisins.
Greint frá á Vestfirska vefnum bb.is
Mynd: sudavik.is
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Keppni3 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Markaðurinn6 dagar síðanUmhverfisvottuð gæði fyrir hótel og gististaði
-
Frétt6 dagar síðanVarað við skordýrum í dilli
-
Markaðurinn4 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt4 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Markaðurinn3 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi


