Uppskriftir
Tacos með risarækjum, mangósalsa og hvítlauks-lime sósu
Hér höfum við ómótstæðilegar tacos með hvítlauksmarineruðum risarækjum, lárperu, klettasalati og frískandi mangósalsa. Ótrúlega bragðgóður og frískandi réttur sem er enga stund að verða til.
Fyrir þennan rétt er mikilvægt að finna sér passlega þroskað mangó þar sem óþroskuð mangó eru ekki nægilega sæt en ofþroskuð eru of mjúk og sæt. Reynið því að velja mangó sem gefa örlítið eftir þegar þau eru kreist, en eru þó nokkuð stinn.
Fyrir 2:
Risarækjur, 400 g
Klettasalat, 40 g
Kirsuberjatómatar, 125 g
Mangó, 1 lítið
Rauðlaukur, 35 g
Kóríander, 10 g
Majónes, 60 g
Sýrður rjómi 10%, 60 g
Límóna, 1 stk
Hvítlauksrif, 2 stk
Avacado, 1 stk
Litlar tortillur (6“), 8 stk
Aðferð:
- Þerrið rækjurnar á hreinu eldhússtykki eða með eldhúspappír. Setjið rækjurnar svo í skál með smá olíu og salti. Pressið 1 hvítlauksrif saman við og blandið vel saman. Látið marinerast á meðan unnið er í öðru.
- Hrærið saman sýrðum rjóma og majónesi. Rífið börkinn af límónunni og pressið 1 hvítlauksrif. Hrærið límónuberki og pressuðum hvítlauk saman við sósuna ásamt 1 msk a límónusafa. Smakkið til með salti og meiri límónusafa ef þarf.
- Skerið mangó og tómata í litla bita, saxið kóríander (líka stilkana) og sneiðið rauðlauk í þunna strimla. Blandið saman í skál.
- Hitið um 1 msk af olíu við meðalháan hita. Steikið rækjurnar í 2 mín á annari hliðinin og svo 1-2 mín á hinni hliðinni eða þar til þær eru eldaðar í gegn. Þetta er best að gera í 2 skömmtum svo rækjurnar steikist sem best. Smakkið til með salti og kreistu af límónusafa.
- Hitið tortilla kökur í stutta stund eftir leiðbeiningum á umbúðum og sneiðið avacado.
- Raðið klettasalati, rækjum, mangó salsa, avacado og hvítlauks lime sósu í tortillurnar og berið fram.
Mynd og höfundur: Snorri Guðmundsson | Matur & Myndir
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanStórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldi
-
Markaðurinn14 klukkustundir síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
-
Keppni5 dagar síðanJakob Alf stóð uppi sem sigurvegari
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSjaldgæft japanskt viskí á matseðli hjá Gordon Ramsay, kostar yfir fjórar milljónir króna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSkandinavísk matarupplifun vakti lukku á Siglufirði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍsak kokkur galdraði fram hátíðarmat fyrir áhöfn Björgúlfs EA 312
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanEyjafjarðarsveit semur við Snæbjörn matreiðslumeistara til 2029
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDwayne Johnson setur aukinn kraft í útrás Teremana





