Frétt
Svona eru ORA grænar baunir gerðar
Jólaundirbúningurinn byrjar snemma í verksmiðju ORA því þar eru framleiddar þrjátíu þúsund dósir á dag fyrir hátíðirnar, þegar best lætur. Það er margur siðurinn sem tilheyrir jólunum og jólaundirbúningi og margt af því tengist mat. Meðal þess sem fólk neytir í meiri mæli yfir jól og áramót eru niðursoðnar grænar baunir.
Um mánaðamótin september, október byrjar starfsfólk verksmiðju ORA að framleiða fyrir jólin, þar á meðal grænar baunir. Yfir jólahátíðina eru seldar tæplega sjö hundruð þúsund dósir af baununum.
„Við reynum að taka langar lotur í grænum baunum og á góðum degi þá tökum við 30.000 dósir þannig að það fara nokkrir dagar í þetta,“
segir Sigurður Ingi Halldórsson, framleiðslustjóri ORA.
Fátt er íslenskara í hugum margra en Ora grænar baunir um jólin. Þær eiga sér þó alþjóðlegan bakgrunn því að baunirnar koma frá Bandaríkjunum, þær eru settar í dós frá Danmörku. Henni er svo lokað með loki frá Mexíkó.
„Við fáum baunir frá Bandaríkjunum, frá Seattle. Við byrjum á því að leggja þær í bleyti. Það flýtir fyrir upptöku vatns og þyngir þær örlítið,“
segir Sigurður Ingi í samtali við RÚV sem fjallar nánar um málið hér og birtir myndband frá framleiðslunni.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn1 dagur síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Frétt7 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun10 klukkustundir síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn1 dagur síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum




