Uppskriftir
Súkkulaðimús með hnetusmjörskaramellu
Ef þú elskar súkkulaði og hnetusmjör þá er þetta uppskrift fyrir þig! Silkimjúkt súkkulaðimús með ómætstæðilegri hnetusmjörskaramellu sem gert er úr hlynsýrópi og mjúku hnetusmjöri. Algjör drauma eftirréttur þegar gera á vel við sig og sína.
Fyrir 4:
Hnetusmjörs karamella:
Hlynsýróp, 120 ml
Mjúkt hnetusmjör, 80 ml
Rjómi, 50 ml
Salthnetur, 80 ml
Súkkulaði mousse:
Rjómi, 250 ml
Súkkulaði 70%, 50 g
Mjólkursúkkulaði, 50 g
Eggjarauður, 2 stk
Sykur, 2 msk
Vanilludropar, 1 tsk
Topping:
Þeyttur rjómi
Súkkulaðispænir
Aðferð:
- Saxið salthnetur, þó ekki mjög smátt.
- Setjið hlynsýróp í lítinn pott og náið upp suðu.
- Hrærið hnetusmjöri saman við þegar hlynsýrópið byrjar að freyða og hrærið þar til hnetusmjörið hefur samlagast sýrópinu. Látið malla rólega í 1-2 mín.
- Bætið rjóma út í, hrærið vandlega og látið malla í nokkrar mín þar til blandan þykkist aðeins (karamellan þykknar líka meira þegar hún kólnar).
- Hrærið að lokum salthnetunum saman við, skiptið karamellunni á milli 4 glasa/skála og látið kólna á meðan súkkulaðimúsin er útbúin.
- Skerið súkkulaði gróflega og bræðið í örbylgjuofni. Hitið í 15 sek í einu og hrærið á milli þar til það er full bráðið.
- Setjið eggjarauður, 100 ml af rjóma, 1 msk sykur og vanilludropa í lítinn pott. Stillið á miðlungshita og hrærið þar til blandan er farin að þykkna nógu mikið til að hylja bakið á skeið, 3-4 mín. Varist að láta blönduna sjóða.
- Hrærið bráðnu súkkulaði saman við og sigtið blönduna í skál. Leyfið að kólna.
- Þeytið restina af rjómanum með restinni af sykrinum og blandið svo varlega saman við súkkulaðiblönduna með sleikju.
- Deilið á milli skálanna/glasanna með hnetusmjörs karamellunni og kælið í amk 2 tíma.
- Toppið með þeyttum rjóma og rífið súkkulaði yfir rétt áður en desertinn er borinn fram.
Mynd og höfundur: Snorri Guðmundsson | Matur & Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðan
Slippurinn í Vestmannaeyjum tekur sitt síðasta tímabil 2025 – Gísli Matt: ástæða lokunarinnar er sú að við trúum því að allt gott taki enda
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðan
La Barceloneta er fyrsti veitingastaðurinn á Íslandi sem hlýtur ICEX viðurkenningu
-
Uppskriftir4 dagar síðan
Vinsælustu uppskriftirnar árið 2024
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Þessi réttir stóðu upp úr hjá Michelin eftirlitsmönnum á árinu 2024
-
Frétt3 dagar síðan
Mest lesnu fréttir ársins 2024 á Veitingageirinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Fálkahúsið og Kokka verðlaunuð fyrir bestu jólaskreytingarnar á árinu sem var að líða
-
Markaðurinn2 klukkustundir síðan
Myndaveisla – Franski bakarameistarinn Remy Corbet Daniel Jean kynnti aldagamlar aðferðir við súrdeigs- og sætabrauðsbakstur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
Ertu frumkvöðull í íslenskri matvælaframleiðslu? 20 milljónir í boði fyrir matarfrumkvöðla