Vertu memm

Frétt

Snapchat veitingageirans á RCW – Hér er dagskrá hátíðarinnar

Birting:

þann

Dagskrá Reykjavík Cocktail Weekend 2018

Smellið á mynd til að stækka

Reykjavík Cocktail Weekend hátíðin hófst í gær og stendur til sunnudagsins 4. febrúar, þar sem henni lýkur með úrslitakeppni í Íslandsmóti barþjóna og keppni milli veitingastaða í kokteilgerð í Gamla bíó.

Íslandsmót Barþjóna í kvöld

Á kvöld fimmtudaginn 1. febrúar fer fram Íslandsmeistaramót Barþjóna í Gamla Bíó, en þar er keppt í tveimur flokkum, annars vegar Íslandsmeistaramóti barþjóna og mun sigurvegari þeirra keppni taka þátt fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti barþjóna sem fram fer á haustmánuðum. Hinsvegar er keppt í þema keppni sem nú verður haldin árlega og er þema Viskí-Diskó að þessu sinni.

Samhliða keppnunum munu allir helstu vín birgjar og framleiðendur kynna helstu stefnur og strauma í kokteila gerð á Íslandi í dag.

Það eru meðlimir í Barþjónaklúbbi íslands sem hafa veg og vanda af hátíðinni í samstarfi við helstu veitinga- og skemmtistaði í Reykjavík.

Áhugasamir geta svo fylgst með hátíðinni á Snapchat, undir notendanafninu veitingageirinn

Dagskrá Reykjavík Cocktail Weekend 2018

Miðvikudagur:

  • Kokteilar í Reykjavík Cocktail Weekend keppninni dæmdir á stöðunum sjálfum.
  • Staðir með uppákomur í samstarfi við umboðsmenn. OFF VENUE
    • Pablo Diskóbar
      OPNUNARPARTÝ á Pablo Diskóbar með Tanqueray, Campari og Moet – Kl 17-21.
  • Aptotek
    Beefeater London Night á Apótekinu – Smáréttir að hætti Apóteksins ásamt sérvöldum Beefeater Kokteilum. Jónmundur Þorsteinsson barþjónn og sigurvegari BeefeterMIXLDN 2017 hristir meðal annars sigurdrykkin sinn “Tresure of Laugardalur” og gefur gestum að smakka. DJ-SímonFKNDSM sér um tónlistina þetta kvöld.

Fimmtudagur:

  • Gamla bíó / húsið opnar kl. 19
    • Undankeppnir Íslandsmóta barþjóna
    • Umboðsmenn með kynningar á vörum sínum
  • Staðir með uppákomur í samstarfi við umboðsmenn. OFF VENUE
  • Petersen Svítan
    Bombay PopUp á Petersen svítunni, Jóhann Jónasson og kokteilsérfræðingar Petersen svítunnar hrista í skemmtilega kokteila. Rósa og Haldór verða með lifandi tónlist frá kl.21 og svo mun DJ Árni Már klára kvöldið.
  • Pablo Diskóbar
    Fordrykkur á Pablo Diskóball, Keppendur í RCW keppninni fá frían Smirnoff Skyball kl 16
  • Brass Kitchen
    Gordons og Britvic bjóða upp í ljúffenga drykki á Brass Kitchen milli kl 18 og 21
  • Bjórgarðurinn
    Bjórinn mun flæða á Bjórgarðinum þar sem að yndislegir bjórkokteilar verða á boðstólnum, í boði Gull og Borg gleðin byrjar kl 17
  • American Bar
    Tango PopUp á American bar í kvöld, Matti Matt og Hreimur halda uppi stemmingu. 2fyrir1 af Bacardi Tango drykkjum

Föstudagur:

  • Staðir með uppákomur í samstarfi við umboðsmenn OFF VENUE
  • Slippbarinn
    Beefefater Pop-up seðill. Nýmóðins Beefeater drykkir ásamt klassíkerum Slippbarsins í gegnum árin. DJ-Bragi Sér um stemmninguna.
  • Geiri Smart – Hilton Reykjavík Canopy
    Brennivín verður á Canoby hotel á Hverfisgötu og munu barþjónar Geira Smart Galdra fram ljúffenga Brennivínskokteila
  • Nora
    Bacardi PopUp á Nora í kvöld. Kokteilsérfræðingurinn Tekla Þorsteins bjó til Bacardi kokteilsseðil kvöldins og mun DJ Símon sjá um músikina.
  • Argentína Steikhús
    Pop-up Carnival Kokteilseðill með Captain Morgan, Patron Tequila og Tito´s Vodka.
  • Hard Rock Café
    Hard Rock bíður öllum matargestum sínum upp á Smirnoff Skyball á ofur föstudagstilboði
  • Bjórgarðurinn
    Bjórinn mun flæða á Bjórgarðinum þar sem að Bjórkokteilar verða á yndislegir bjórkokteilar verða á boðstólnum, í boði Gull og Borg gleðin byrjar kl 17
  • American bar
    Jack Friday á American bar, Jack Daniels kokteilar á sannkölluðu föstudagsverð
  • Hlemmur Squere
    Hlemmur Square verður með matarpörun á Gordons kokteilum og ljúffengum Tapas réttum frá Pulsa milli kl 18 og 20
  • Petersen Svítan
    Petersen Svítan – Kokteilsérfræðingar Petersen svítunnar verða með Finlandia popup í kvöld frá kl.22 og til lokunnar.

Laugardagur:

  • Staðir með uppákomur í samstarfi við umboðsmenn.
  • Apótek
    Apótek Restaurant fer í labbitúr og býður upp á Johnnie Walker Black Label kokteila eða  Jonna stél á frábæru verði stuðið byrjar kl 17
  • Argentína steikhús
    Steik og Woodford kokteilar á Argentínu, Kokteilsérfræðingar Argentínu settu saman skemmtilegan Woodford seðil sem verður á sérstöku RCW verði í kvöld.
  • American Bar
    American Bar býður upp á sturlaða gleði í samstarfi við Smirnoff Skyball á öðru leveli ásamt Thomas Henry frá kl 21
  • Slippbarinn
    Barþjónar Slippbarsins galdra fram Johnnie Walker kokteila eins og þeim einum er lagið frá kl
  • Hard Rock
    Malibu kokteilakvöld. Frábær matur og Malibu kokteilar á frábæru verði.
  • Bar Ananas
    Back to Cuba, Bacardi Mojito kvöld á Bar Ananas í kvöld. 4 Mismunandi tegundir af Mojito á veskisvænu verði.

Sunnudagur:

  • Gamla bíó / 14:00-16:00
    • Úrslit í Íslandsmóti, þema keppni og kokteill Reykjavík Cocktail Weekend kunngjörður
  • Gamla bíó / 19:00 – 24:00
    • Kvöldverður og partý
  • Staðir með uppákomur í samstarfi við umboðsmenn. OFF VENUE
  • Pablo Diskóbar
    Fordrykkur á Pablo Diskóball, Keppendur í RCW keppninni fá frían Smirnoff Skyball kl 16
  • Petersen Svítan
    Erpur Eyvindarson verður með Havana Club Romm Masterclass/uppistand  á Petersen svítunni á milli kl 17.30-19 á sunnudeginum.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss
  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.

Mest lesið