Keppni
Skráning hafin í nemakeppni í bakstri
Forkeppni í nemakeppni í bakstri verður haldin föstudaginn 8. febrúar næstkomandi. Keppnin fer fram í bakaradeild stofu v207 Í Hótel- matvælaskólanum í Menntaskólanum í Kópavogi.
Nánari upplýsingar um keppnina er hægt að lesa hér að neðan:
- 1 stór brauðategund 500 – 800 gr. 10 stk. af teg.
– Engar nánari skilgreiningar, frjálsar aðferðir. - 1 smábrauðategund 30 stk. á 60- 80 gr. eftir bakstur.
– Þema : morgunverðar brauð. Ekki leyft að rúlla smjöri eða smjörlíki í deigið. Að öðru leyti frjálst. - 3 vínarbrauðstegundir 50 – 70 gr. eftir bakstur
– 12 stk. af tegund.
– Frjáls úrvinnsla úr afgangi af deigi, þó að hámarki
– úr 500 gr. af deigi. - Skraut stykki. Frjálst þema. Stærð max 50x50x50.
- Uppstilling á fyrirfram dúkað borð í Björnsstofu.
Stærð ca. 120 x 80 cm. með hvítum dúkum.
Sérstök athygli skal vakin á því að ekkert annað en keppnisframleiðslan er leyfð á borðið.
Skráning fyrir 31. janúar 2019 sendist á netfangið [email protected] og einnig frekari fyrirspurnir varðandi keppnina.
Keppnisreglur í forkeppni:
- Keppendur hafa 5 klst. sem þeir mega nota að vild.
- allt mjöl og korn skal vera frá Kornax og verður það ásamt öllum grunn-hráefnum á keppnisstað.
- Keppendur koma með öll hráefni vigtuð og tilbúin en ósamsett
- Keppendur meiga koma með skrautdeig útrúllað, tilbúð til að skera út, fyllingar og glssúr.
- Engar mjölblöndur (brauðamix) eru leyfðar.
- Keppendum er heimilt að nota hjálparefni svo sem gernæringarefni, súrdeig, litarefni o.þ.h. að höfðu samráði við dómara.
- Keppendur koma með það sjálfir, en tilkynna skal um slíkt fyrirfram.
- Öll deig skulu vera fyrirfram útreiknuð og nákvæmlega löguð. Deig afgangar mega ekki vera meiri en 250 grömm í hverri deigtegund.
- Reiknuð eru 5 refsistig fyrir hver byrjuð 250 grömm eftir það.
- Keppendur verða að hafa lokið öllum frágangi á vinnustöð og í bakaríi ásamt uppstillingu á 5 klst.
- Reiknuð eru 5 refsistig á hverjar byrjaðar 5 mínútur sem keppandi fer umfram 5 klukkustundir.
- (keppandi stöðvaður eftir 15 mín.)
- Þegar keppandi hefur lokið öllu skal hann láta dómara vita.
Mynd: úr safni
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni3 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn4 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Markaðurinn3 dagar síðanTandur fyrst á Íslandi til að Svansvotta snyrtivörur
-
Markaðurinn5 dagar síðanSnædís Xyza keppir í Bocuse d’Or Europe í dag






