Frétt
Segull 67 brugghús hlýtur Bláskelina, viðurkenningu fyrir plastlausa lausn

Marteinn Haraldsson einn eiganda Seguls 67 brugghúss tekur við viðurkenningunni úr hendi Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.
Brugghúsið Segull 67 hlaut í dag Bláskelina, nýja viðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins fyrir framúrskarandi plastlausa lausn. Umhverfisráðherra veitti viðurkenninguna um leið og hann setti átaksverkefnið Plastlausan september í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Var það niðurstaða dómnefndar að sú lausn Seguls 67 að nýta bjórkippuhringi úr lífrænum efnum í stað plasts væri framúrskarandi. Í rökstuðningi nefndarinnar kemur fram að hún hefði lagt áherslu á að lausnin hefði möguleika á að komast í almenna notkun og að nýnæmi lausnarinnar hér á landi hefði vegið þungt. Ef fleiri framleiðendur myndu nota lífræna kippuhringi í stað plasts myndi það ekki einungis skila sér í minni plastnotkun og -mengun heldur einnig auka meðvitund í samfélaginu um óþarfa plastnotkun. Á síðasta ári voru 15 milljónir lítra af bjór í áldósum seldir hérlendis og 75% þeirra eru íslensk framleiðsla, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðs Íslands.
Kallað var í sumarbyrjun eftir tilnefningum frá almenningi um fyrirtæki, stofnanir, einstaklinga eða aðra sem hafa nýtt framúrskarandi lausnir við að stuðla að minni plastnotkun og minni plastúrgangi í samfélaginu. Fjögurra manna dómnefnd skipuð fulltrúum frá Umhverfisstofnun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Plastlausum september fór yfir tilnefningarnar og valdi verðlaunahafa.
Fimm aðilar komust í úrslitahóp dómnefndar auk Seguls 67, en það voru Bioborgarar, Efnalaugin Björg, Farfuglar á Íslandi og Kaja Organics. Bioborgarar er lífrænn hamborgarastaður sem m.a. framreiðir matinn í margnota búnaði á staðnum og í pappaumbúðum fyrir þau sem taka hann með, Efnalaugin Björg býður upp á fjölnota fatapoka, Farfuglar á Íslandi hafa dregið verulega úr plastúrgangi og tekið út einnota plast í rekstri farfuglaheimila sinna og Kaja Organics rekur meðal annars umbúðalausa verslun, lífrænt kaffihús, heildsölu og framleiðslu vottaða af Tún lífrænni vottun.
Stofnað var til Bláskeljarinnar í því skyni að hvetja til plastlausra lausna í íslensku samfélagi og er viðurkenningin liður í aðgerðum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins til að draga úr plastmengun.
Mynd: stjornarradid.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or16 klukkustundir síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Frétt4 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn6 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt5 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni3 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanVinsælustu pizzaáleggin á Íslandi





