Markaðurinn
Sætustu skyrskvísur landsins
Við fljúgum inn í nýtt ár með spennandi nýjung í KEA skyri en nú er hafin sala á KEA smáskyri í skvísum. Nýja smáskyrið fæst í þremur bragðtegundum: vanillu, jarðarberja og banana og hefur það fengið mikið lof hjá þeim sem hafa smakkað.
Hvert smáskyr er 90 g og er því tilvalið nesti í skóla og vinnu og þá hentar það einstaklega vel fyrir fólk sem er að ferðast þar sem það má taka þetta magn með sér í flugvél. Nýja skyrið er líkt og aðrar KEA skyr bragðtegundir próteinríkt, laktósalaust og einstaklega bragðgott.
„Við erum virkilega ánægð með nýja KEA smáskyrið og höfum fengið afar jákvæð viðbrögð frá þeim sem hafa fengið að smakka þessa nýjung í vöruþróunarferlinu,“
segir Halldóra Arnardóttir markaðsstjóri ferskvara hjá Mjólkursamsölunni. Smáskyrið er í fallegum og handhægum umbúðum og er bæði ljúffengt og létt í maga.
„Það er óhætt að segja að smáskyrið henti vel í flugið, jafnvel á næsta fund, það er tilvalið nesti í skólann og fullkomið eftir sund,“
segir Halldóra og hvetur fólk til að taka flugið með sætustu skyrskvísum landsins.
-
Keppni5 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFimmtán vín hljóta Gyllta Glasið 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanStóreldhússvið Danól verður Vistró
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMyndasafn: Stóreldhúsið 2026 vel sótt í Laugardalshöll
-
Keppni5 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt3 dagar síðanQR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar
-
Frétt2 dagar síðanVanilludropar Bónuss teknir úr sölu




