Nemendur & nemakeppni
Rúnar Ingi landsliðsmaður kenndi matreiðslunemum pylsugerð
Mikilvægt er fyrir matreiðslumenn framtíðarinnar að þekkja fjölbreytt hráefni og kunna skil á því hvernig það verður til. Liður í þessu var heimsókn Rúnars Inga Guðjónssonar, gæðafulltrúa hjá Kjarnafæði og liðsmanns í landsliði kjötiðnaðarmanna, í 2. bekkinn í matreiðslu í VMA á dögunum.
Nemendur í 2. bekk vinna gjarnan að ákveðnu verklegu verkefni tvo daga í röð í námi sínu á þessari önn og að þessu sinni var ákveðið að verja þeim í pylsugerð. Rúnar Ingi var gestakennari og leiddi nemendur í allan sannleika um leyndardóma pylsunnar, hann kynnti fyrir þeim fjórar mismunandi pylsuuppskriftir sem nemendur síðan bjuggu til undir vökulum augum Rúnars Inga.
Nemendur sáu um að elda annað meðlæti með pylsunum og afraksturinn var síðan borinn á hlaðborð fyrir um tuttugu manna hóp frá Starfsmannafélagi VMA.
Ekki þarf að hafa um það mörg orð að útkoman var afbragðs góð og sælkerarnir kunnu afar vel að meta.

Theodór Sölvi Haraldsson matreiðslumeistari og kennari í VMA, var ánægður með nemendur sína sem sýndu mikinn áhuga á pylsugerðinni
Rúnari Inga Guðjónssyni er þakkað fyrir að gefa sér tíma til að miðla þekkingu sinni til matreiðslunemanna. Einnig fær Kjarnafæði sérstakar þakkir fyrir að hafa styrkt þessa æfingu nemendanna en fyrirtækið útvegaði hráefnið í pylsugerðina. Almennt hefur Kjarnafæði í gegnum tíðina stutt af rausnarskap við kennslu á matvælabraut VMA og vill skólinn af heilum hug þakka fyrirtækinu stuðninginn.
Myndir: vma.is
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or9 klukkustundir síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or14 klukkustundir síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Frétt5 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or18 klukkustundir síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Markaðurinn7 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir















