Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Reynir Grétarsson opnar Dinner á LYST á Akureyri – „Við viljum hækka standardinn aðeins í mat og þjónustu.“
Veitingastaðurinn og kaffihúsið LYST í Lystigarðinum hefur á skömmum tíma orðið stór hluti af veitingalífi Akureyrar. Nú stendur til að bæta við nýjum kafla í rekstrinum með opnun á Dinner á LYST, kvöldverðarstað þar sem áherslan verður lögð á vandaðan mat, lifandi vínseðil og afslappaða stemningu.
Hugmyndin að kvöldverðarstaðnum hefur lengi verið til staðar hjá teyminu, þó hún hafi ekki farið í framkvæmd fyrr en nú. Að sögn Reynis Grétarssonar matreiðslumeistara kallaði bæði húsið og staðsetningin í Lystigarðinum á slíka þróun. Þegar Rafn Svansson ákvað að slást í hópinn fór verkefnið hins vegar hratt af stað.
Undirbúningurinn sjálfur tók því ekki langan tíma, þó grunnhugmyndin hafi verið rædd í töluverðan tíma áður en ákvörðunin var tekin í vetur.
Kvöldseðillinn verður byggður upp á tíu réttum, þremur forréttum, fjórum aðalréttum og þremur eftirréttum. Réttirnir verða ekki bundnir við fasta framsetningu heldur aðeins merktir sem fiskur, kjöt eða grænmeti svo eldhúsið geti unnið frjálst með það hráefni sem er í boði hverju sinni.
Auk þess verður sérstakur „minni mat“ seðill fyrir þá sem vilja aðeins setjast niður yfir vínglasi og léttari réttum.
Markmiðið með Dinner á LYST er að skapa afslappaða og skemmtilega upplifun þar sem matur, umhverfi og stemning vinna saman. Reynir segir mikilvægt að staðurinn sé fyrst og fremst staður þar sem fólki líður vel og vill koma aftur.
Vínin verða áfram stór hluti af upplifuninni hjá LYST. Vínlistinn verður settur upp með um 20 til 30 flöskum, á meðan glasavínin verða áfram breytileg eftir framboði og árstíðum. Frá upphafi hefur staðurinn lagt áherslu á náttúruvín, þó markmiðið sé að hafa fjölbreytt úrval sem höfðar til sem flestra gesta.
„Við höfum frá upphafi unnið með náttúruvín, en leggjum áherslu á að vera með góða blöndu, eitthvað sem hentar sem flestum, ekki bara skrítnu flöskurnar,“
segir Reynir í samtali við veitingageirinn.is.
Staðurinn er einnig að flytja inn eigið vínúrval og eru sendingar frá Katalóníu væntanlega rétt fyrir opnun.
Boðið verður upp á vínpörun með matseðlinum og verður hagkvæmast fyrir gesti að velja þriggja rétta máltíð ásamt vínpörun.
Dinner á LYST mun í fyrstu aðeins vera opið fimmtudaga til laugardaga. Ástæðan er sú að reksturinn í Lystigarðinum er þegar umfangsmikill yfir sumarið með morgunmat, kaffihúsi, hádegisþjónustu og happy hour samhliða kvöldverðinum. Hópar geta þó bókað kvöldverð alla daga vikunnar.
Kvöldþjónustan rúmar um 50 gesti inni, auk stórt útisvæði sem verður nýtt vel yfir sumartímann fyrir vín og mat.
Þrátt fyrir nýja kvöldáherslu verður stemningin áfram byggð á sama grunni og dagreksturinn. Kvöldin verða þó aðeins fágaðri í uppdekkningu, mat og þjónustu.
„Við viljum hækka standardinn aðeins í mat og þjónustu. Þetta á samt alls ekki að vera of fínt,“
segir Reynir.
Mikilvægt verður að bóka borð fyrirfram þar sem sætafjöldinn er takmarkaður. Bókanir fara fram á LYST.is.
Rafn Svansson verður yfirkokkur Dinner á LYST og mun stýra kvöldseðlinum og móta stemninguna á kvöldunum. Fyrir er Tryggvi Þór Traustason, sem er yfirkokkur LYST og hefur byggt upp dag- og hádegisreksturinn sem notið hefur mikilla vinsælda.
Teymið á bak við starfsemina telur um 20 til 23 manns yfir sumarið. Þar nefnir Reynir sérstaklega framlag Vöku Mar veitingastjóra við uppbyggingu kvöldþjónustunnar.
Aðspurður hvort Dinner á LYST sé fyrsta skrefið í stærri uppbyggingu segir Reynir fókusinn núna fyrst og fremst vera á að halda gæðum í allri starfseminni, bæði í Lystigarðinum og á Kaffi LYST í Eymundsson.
Þó eru þegar komnar fram hugmyndir um frekari þróun og viðburði tengda kvöldverðinum. Þar hefur meðal annars verið rætt um að tengja saman tónleika og kvöldverði í sérstökum dinner & show kvöldum á næstu misserum.
Ef lýsa ætti Dinner á LYST í einni setningu segir Reynir hugmyndina einfalda.
„Dinner á LYST er staður þar sem þú kemur í góðan mat, góða stemningu og nýtur kvöldsins.“
Myndir: úr einkasafni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSlow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
-
Keppni5 dagar síðanLeitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
-
Starfsmannavelta1 dagur síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun8 klukkustundir síðanGæti ÓX orðið næsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Markaðurinn4 dagar síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Frétt1 dagur síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Markaðurinn4 dagar síðanFljótlegur og bragðmikill taco-réttur fyrir fjölskylduna
-
Markaðurinn4 dagar síðanLóan komin og júnítilboðin hjá Nathan líka













