Smári Valtýr Sæbjörnsson
Rafræn atkvæðagreiðsla um boðun verkfalls er hafin
Nú stendur yfir leynileg atkvæðagreiðsla í félögum iðnaðarmanna um hvort boða eigi allsherjarverkfall í kjaradeilu félaganna við Samtök atvinnulífsins. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 10 1. júní.
Þar er sú spurning lögð fyrir félagsmenn hvort þeir vilji að boðað verði allsherjarverkfall sem standi frá miðnætti aðfaranótt 10. júní til miðnættis að kvöldi 16. júní 2015 og til ótímabundins allsherjarverkfalls frá miðnætti aðfaranótt 24. ágúst 2015. Verkfall mun eingöngu koma til framkvæmda ef þörf krefur og ef kjarasamningar hafa ekki verið undirritaðir.
Félög iðnaðarmanna hafa gengið sameinuð til viðræðna við Samtök atvinnulífsins á þessu ári.
Helstu kröfur okkar eru:
- Almenn hækkun launa 20%
- Byrjunarlaun iðnaðarmanns með sveinspróf verði kr. 381.326 á mánuði
- Bil á milli taxta verði 3%
- Fara yfir hlutföll milli hópa í launatöflu og tengja launaflokka við hæfniþrep
- Orlofs og desemberuppbætur hækki. Verði hálf mánaðarlaun viðkomandi
- Aðfangadagur og gamlársdagur verði frídagar launafólks hjá þeim sem ekki hafa það nú þegar
- Nýir kjarasamningar gildi frá 1. mars 2015
Þetta eru sanngjarnar kröfur og í samræmi við raunverulega stöðu mála í atvinnulífinu og samfélaginu, segir á heimasíðu Matvís.
Þrátt fyrir það ber mikið í milli í viðræðum okkar við Samtök atvinnulífsins. Það er einróma niðurstaða viðræðunefndar iðnaðarmannafélaganna að tilgangslaust sé að halda viðræðum áfram. Til að koma hreyfingu á málin og fylgja kröfum okkar eftir sé nauðsynlegt að afla heimildar félagsmanna til að boða verkfall.
Við hvetjum félagsmenn eindregið til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni og sýna hug sinn í verki. Góð þátttaka og góð samstaða sendir mikilvæg skilaboð að samningaborðinu. Við viljum að íslenskur vinnumarkaður verði samkeppnishæfur við Norðurlöndin og að fólk geti lifað mannsæmandi fjölskyldulífi af dagvinnulaunum. Með því að nýta samtakamáttinn getum við náð markmiðum okkar og fengið sanngjarnar kjarabætur.
Tökum öll þátt í atkvæðagreiðslunni,
skrifar Níels Sigurður Olgeirsson formaður Matvís.
Hvernig fer rafræna atkvæðagreiðslan fram?
Eins og fram hefur komið þá stendur nú yfir rafræn atkvæðagreiðsla um boðun verkfalls í kjölfar þess að viðræðum við Samtök atvinnulífsins um endurnýjun á kjarasamningi sem rann út þann 28. febrúar s.l. var slitið. Atkvæðagreiðslan er leynileg og tekur til þeirra félagsmanna MATVÍS sem taka laun samkvæmt kjarasamningi félagsins og Samtaka atvinnulífsins.
Verkfallið komi til framkvæmda sem hér segir:
Frá miðnætti aðfaranótt 10. júní til miðnættis 16. júní og ótímabundið frá miðnætti aðfaranótt 24. ágúst.
Leiðbeiningar um þátttöku í rafrænni kosningu um boðun verkfalls:
- Farið á heimasíðu MATVÍS. Smellið þar á tengilinn Rafræn kosning
- Við það opnast gluggi þar sem þú slærð inn kennitölu þína og síðan auðkennið (sem þú hefur fengið sent heim í pósti).
- Þá geturðu kosið um hvort þú samþykkir að efna til verkfalls eða hafnar því.
Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 10 mánudaginn 1. júní nk. Úrslit verða birt á heimasíðu félagsins.
Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kosið á skrifstofu félagsins.
Mynd: úr safni.
-
Frétt6 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni6 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni6 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Frétt1 dagur síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn3 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt2 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum






