Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
ÓX er nýr kósý veitingastaður á Laugaveginum
Nýr veitingastaður ÓX (dregið af orðinu vaxa) opnar á Laugaveginum.
„Hugmyndin af ÓX kom fyrir um 10 árum síðan þegar ég var að vinna upp í Grilli á Hótel Sögu og vinna í Kjarrá veiðihúsinu á sumrin.“
Sagði Þráinn Freyr Vigfússon matreiðslumaður og eigandi Sumac og ÓX í samtali við veitingageirinn.is.
„Nálægðin við gestinn sem ég upplifði í Kjarrá var svo mikil og opnaði alveg þann heim fyrir mér þá! Á þessum tíma var maður bara inn í eldhúsinu á bak við glerið upp í Grilli og hitti eða talaði ekki við gesti að neinu viti. Þá hugsaði ég; „Ég ætti bara opna lítinn veitingastað þar sem ég er bara einn starfsmaður sem þjóna, elda og spjalla við gesti“. Sú hugmynd var lítið kósý heimilis eldhús og bar í kringum þar sem gestir sitja.
Eldhús innréttingin er frá 1961 og smíðuð af afa mínum og var hún notuð á sveitabæ hans og ömmu. Ég er sem sagt búinn að geyma hana í nokkur ár með þá hugmynd að nota hana á litla staðnum.“
ÓX tekur aðeins 11 manns í sæti og er opinn miðvikudaga til laugardags og eru tveir starfsmenn sem vinna að hverju sinni. Gestir mæta stundvíslega eða klukkan 19:00 og kvöldverðurinn hefst 19:15 og tekur um tvo og hálfan tíma.
Miðar á kvöldverðinn er seldur í gegnum netið og fær gesturinn strax tölvupóst með leiðbeiningum um hvar staðurinn er staðsettur. Borgað er fyrirfram og eina sem gesturinn þarf að gera er að mæta með góða skapið og njóta. Boðið verður upp á öðruvísi íslenskan gamaldags mat í nýjum búningi í bland við klassíska evrópskra matargerðalist, allt er innifalið í verði, vínpörun eða óáfeng pörun og kaffi.
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Markaðurinn4 dagar síðanEyjó og Dóri mættu með afmælisköku – Hafið fagnar tímamótum
-
Uppskriftir4 dagar síðanAurore hjá Sweet Aurora deilir uppskrift með lesendum veitingageirans
-
Keppni4 dagar síðanKokkur ársins 2026 og Grænmetiskokkur ársins 2026 fara fram í IKEA í mars
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Keppni5 dagar síðanFreyja Þórisdóttir stóð uppi sem sigurvegari í keppninni um Bláa Safírinn – Myndir og vídeó
-
Frétt3 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Keppni5 dagar síðanGraham’s Blend Series snýr aftur stærri og metnaðarfyllri en áður







