Frétt
Óþvegið salat hugsanlega ástæðan á magakveisu starfsmanna í Háaleitisskóla
Á síðustu tveimur vikum hefur komið upp faraldur magakveisu meðal starfsmanna Háaleitisskóla – Hvassaleiti í Reykjavík og Hörðuvallaskóla í Kópavogi. Stór hluti starfsmanna í þessum tveimur skólum hefur veikst með magaóþægindum og niðurgangi sem varir í nokkra daga, að því er fram kemur á vef Matvælastofnunnar mast.is
Ekki hefur borið á ofangreindum veikindum meðal starfsmanna annarra skóla á höfuðborgarsvæðinu og þeir starfsmenn sem hafa veikst virðast ekki hafa smitað aðra í neinum mæli.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gerði faraldsfræðilega rannsókn til að finna hvort að tengsl væri á milli neyslu matvæla í Hvassaleitisskóla og veikinda. Niðurstöður rannsóknar sýndu að sterk tengsl voru við neyslu salats sem var óþvegið og því sennilegt að um matarsýkingu sé að ræða. Salat úr sömu framleiðslulotu hafði líka verið borið fram um svipað leyti í Hörðuvallaskóla. Rannsóknir á óþvegnu salati frá sama framleiðanda og það sem boðið var upp á í báðum skólunum hafa leitt í ljós hugsanlegan sýkingarvald, bakteríuna Aeromonas hydrophila sem þekkt er að getur valdið veikindum eins og hér um ræðir. Rannsóknir á saursýnum frá veikum einstaklingum eru enn í gangi.
Veikum starfsmönnum er ráðlagt að halda sig heima meðan niðurgangurinn gengur yfir og að auki í einn dag til viðbótar. Veikir starfsmenn sem að auki hafa lifrarsjúkdóm eða annað ónæmisbælandi ástand ættu að leita til læknis til að fá sýklalyf sem líklegt er að vinni á Aeromonas. Ef einkenni vara lengur en viku eða alvarleg veikindi koma upp getur verið ástæða til að jafnvel annars hraustir einstaklingar fái meðferð.
Hvatt er til almenns hreinlætis og handþvottar og að farið sé eftir leiðbeiningum um meðferð matvæla. Ekki er talin hætta á að magakveisan breiðist út til nemenda ef venjulegt hreinlæti er virt og því ekki ástæða til að stöðva starfsemi skólanna á grunni sýkingarhættu.
Matvælastofnun vill vekja athygli á útgefnum leiðbeiningum hér.
Mynd: úr safni
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanSkylduhráefni Bocuse d’Or liggur fyrir – Íslenska liðið þegar í fullum undirbúningi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanSushi staðurinn Majó flytur starfsemi sína í Hof á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMeistarakokkar færa sælkeramat í hillur Krónunnar
-
Pistlar3 dagar síðanEinfaldlega íslenskt um jólin
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanSAUÐÁ býður upp á Pop up með Michelin matreiðslu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanVeitingarekstur á KEF varð ósjálfbær – Reksturinn skilaði milljarðatapi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýtt bakarí í undirbúningi á Öskjureitnum á Húsavík
-
Keppni5 dagar síðanCoffee & Cocktails hreppti 1. sætið í Old Fashioned keppninni






