Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Opnun á Veitingastaðnum Ó á Hótel Óðinsvé
Í dag eignaðist Reykjavík nýjan veitingastað, er hann staðsettur á Hótel Óðinsvéum þar sem Siggi Hall var og var Pósturinn, æ fyrirgefið Freisting.is á svæðinu að sjálfsögðu. Salurinn hefur verið tekinn all hraustlega í gegn og er maður gengur inn um nýjan inngang beint úr andyrinu kemur maður beint inn á barinn og sér yfir salinn, mín fyrstu viðbrögð voru Já, Klassi, Róandi, en litasamsetningin hefur heppnast alveg einstaklega vel, sjón er sögu ríkari.
Yfirþjónn er Ágúst Guðmundsson og Yfirmatreiðslumaður er Eyþór Rúnarsson meðlimur Landsliði Matreiðslumanna og er hann heimavanur, en hann hefur alið manninn síðustu 5 árin í húsinu. En nú kveður við annan tón í matnum, nýr stíll og nýir straumar og er óhætt að hrósa þessm ungu kokkum eins og Eyþóri að nota á matseðlinum annað og meira en lundir, hryggvöðva og humar, eins og var á matseðlum ekki fyrir svo mörgum árum.
Sem dæmi um rétti á matseðlinum, forréttur, Úrval úr íslensku matarkistunni ( hreindýrapaté, Ó síld, reykt bleikja, ostur með lauk og rúsínusultu), Smáréttur, Canneloni ( gljáð rifin svínarif rúlluð inn í pasta með graskersmauki ), Aðalréttir, Lúða ( steikt í smjöri og söl með gulrótum, rófum og kartöflu og lúðustöppu, grænum eplum og dill, Nautahryggvöðvi ( steiktur með hægelduðum nautarifjum, karamelluðum skalottulauk og tómatmarmelaði.
Dessert, Skyr ( með appelsínukremi, maltís, púðursykursmulningi og maltsírópi ) hljómar allt mjög girnilegt í eyrum, svo verður að koma á daginn hvort Eyþór og hans team nái að fylgja því eftir niður í maga, ég vill meina að það verði létt hjá þeim.
Ljósmyndir tók Matthías Þórarinsson | Texti: Sverrir Halldórsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni4 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau




