Smári Valtýr Sæbjörnsson
Ólaunaðar prufuvaktir notaðar til að svindla og spara kostnað
„Það eru allt of mörg dæmi um að fólk sé ekki að borga fyrir prufuvaktir og þetta er að verða stórt vandamál, sérstaklega í veitingageiranum,“
segir Halldór Oddsson, lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands í samtali við Fréttablaðið.
„Þetta er nýr kúltúr hjá svindlurum, við fórum að verða vör við þetta fyrir tveimur, þremur árum fyrst,“
bætir Halldór við. Ungt fólk og erlendir starfsmenn séu sérstaklega berskjaldaðir, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag.
Fólk sem er fengið í svokallaðar prufuvaktir á lögum samkvæmt að fá greitt fyrir þær. Halldór segir dæmi um að staðir séu að spara sér launakostnað með því að hafa alltaf einn í prufu á vakt. Staðirnir boða þá alltaf nýja og nýja í prufuvaktir og greiða þeim ekki og ráða þá ekki í vinnu.
„Við höfum hjólað í þessi fyrirtæki af öllu afli. Svona dæmi geta jaðrað við skipulagða brotastarfsemi á réttindum. Þetta er praktíserað úti hjá launaþjófunum eins og við viljum gjarnan kalla þá.“
Halldór segir ASÍ setja aukið púður í átakið Ekkert svindl í sumar, sérstaklega gagnvart unga fólkinu, sem vinnur í skólafríum.
„Markmiðið með Ekkert svindl er að koma þessu áleiðis,“
segir Halldór.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 26. maí.
Mynd: úr safni
-
Markaðurinn4 dagar síðanSupermeals kynnir nýja eiginleika sem einfalda birtingu matseðla og straumlínulagaða skráningu viðskiptavina
-
Keppni5 dagar síðanÞrjátíu ár við stjórnvölinn – Bjarki Hilmarsson heiðraður
-
Keppni6 dagar síðanÍsak Aron Jóhannsson er Kokkur ársins 2026 – úrslit úr öllum keppnum
-
Keppni4 dagar síðanSkráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanPizza pop-up og sultukynning frá Helvítis Kokkinum á Norðurlandi
-
Markaðurinn4 dagar síðanMötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanStórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldi
-
Markaðurinn3 dagar síðanMata hf. tekur við dreifingu á Nordic Wasabi





