Freisting
Nýr rekstrarstjóri og breytingar framundan á Fernandos á Ísafirði
Miklar breytingar eru í aðsigi á veitingastaðnum Fernandos á Ísafirði að sögn Níelsar Björnssonar nýs rekstrarstjóra staðarins. Þessi staður býður upp á endalausa möguleika og fólk mun sjá ýmsar breytingar á næstunni en meginmarkmiðið er að fólki líði vel og vilji koma hingað, segir Níels sem tekur við af Sigurði Páli Ólafssyni sem rekstrarstjóri. Ekki verða einungis gerðar breytingar á matseðli heldur einnig á útliti staðarins. Það eru ótal hugmyndir á lofti núna. Við ætlum að gera staðinn litríkari og bjóða upp á heimilislegri mat í bland við það sem er í boði.
Þá erum við að velta fyrir okkur að hafa þemavikur og bjóða af og til upp á lifandi tónlist, segir Níels. Fernando´s opnaði í nóvember og vakti strax athygli fyrir að ekki voru þar leyfðar reykingar. Fólk hefur haft orð á því að það muni hafa áhrif á staðinn sem kaffihús en ég óttast það ekki. Á næsta ári verður það fært í lög að hvergi megi reykja á veitingastöðum og þá munum við hafa forskot, segir Níels.
Níels hefur í árafjöld starfað sem kokkur á togaranum Páli Pálssyni og því ljóst að miklar breytingar eru framundan í hans persónulega lífi líka. Ég hef verið togarasjómaður í 27 ár og fjölskyldan mín aldrei kynnst öðru. Svo er ég líka í prófkjöri svo það er mikið að gera og lítið sofið þessa dagana. Ég hef þó ekki alveg sagt skilið við eldamennskuna því ég mun hjálpa til á álagstímum og leysa kokkinn af, segir Níels Björnsson.
Greint frá á Vestfirska fréttavefnum bb.is
-
Keppni5 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Íslandsmót barþjóna4 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
-
Frétt3 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Markaðurinn3 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNý mathöll, fleiri verslanir og vinsælir viðburðir auka aðsókn í Smáralind



