Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýr matarvagn/veitingastaður opnar á Akureyri – Ingi matreiðslumaður: „Við verðum með smá fine dining infusion“
Nýr matarvagn lítur dagsins ljós á Akureyri nú á næstunni sem heitir Mosi – streetfood. Vagninn er ekki fullkláraður að utan, en stefnan er að opna í byrjun maí.
Nákvæm dagsetning á opnun og staðsetning á vagninum verður auglýst á facebook síðu Mosi – streetfood, fylgist vel með. Eigendur eru Ingi Þór Arngrímsson og Nikolina Gracanin. Ingi er matreiðslumaður að mennt.
„Við stefnum á að vera með þokkalegan hollan streetfood með smá svona fine dining infusion, en ætlum ekki að missa okkur í pinsettunum og perraskap. Við munum bjóða upp á nánast alla rétti vegeterian líka.“
Sagði Ingi í samtali við veitingageirinn.is. Matseðillinn er ennþá á lokaskrefunum, en eftirfarandi réttir verða t.a.m. á boðstólnum:
Pulled-pork taco, með sýrðu hvítkáli, pikkli og mayo „ponzu“.
Dirty franskar, heimagerðar franskar með cheddarsósu, beikoni og vorlauk.
Bbq quesadilla með djúpsteiktum kjúkling og salsa.
Djúpsteikt Burek með grískujógúrti.
Marokkóskur kjúklingur á naanbrauði með eplachutney og japönsku mayo.
Sticky brokkoli „wings“ með pikkluðum chilli og chilli mayo.
Myndir: facebook / Mosi – streetfood.
-
Keppni5 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Keppni20 klukkustundir síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanLaunakostnaður og samdráttur setja Carl’s Jr. rekstur á hliðina
-
Markaðurinn24 klukkustundir síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski
-
Frétt3 dagar síðanKóríanderfræ innkölluð eftir að hættulegt efni greindist




