Starfsmannavelta
Nýir rekstraraðilar taka við Tryggvaskála
Tómas Þóroddsson, Ívar Þór Elíasson og Margrét Rún Guðjónsdóttir hafa tekið við rekstri Tryggvaskála á Selfossi .
Fyrirtæki þeirra Tryggvaskáli ehf. mun áfram halda úti veitingarekstri í húsnæðinu og munu þau kynna helstu áherslur síðar en stefnt er á opnun staðarins eftir miðjan maí. Leigusamningurinn er til 5 ára með möguleika á framlengingu og hefur Tryggvaskáli ehf. nú tekið formlega við húsnæðinu.
Aðspurð um við hverju fólk megi búast segja þau:
„Það verða breytingar, reyndar ekki mikið hér inni. Andrúmsloftið verður hlýtt, en við komum þó til með að létta stemninguna töluvert. Maturinn verður allt öðruvísi og meira lagt upp úr að hægt sé að koma og fá sér drykk og eitthvað létt að borða. Tómas skýtur inn að matseðillinn verði stilltur af í verði og hægt að koma og fá sér að borða oftar en þegar fólk á afmæli. Svolítið hugsað að vera með minni rétti og hægt verði að deila matnum með borðinu. Steikurnar og fiskurinn eru ekkert að hverfa, en þetta verður fjölbreytt,“
að því er fram kemur á dfs.is sem fjallar nánar um málið hér.
Mynd: úr safni / Veitingageirinn.is
-
Frétt5 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni6 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni6 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or7 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Frétt18 klukkustundir síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun21 klukkustund síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Markaðurinn7 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars






