Nemendur & nemakeppni
Ný reglugerð um vinnustaðanám
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um vinnustaðanám nema í iðngreinum, sem felur í sér grundvallarbreytingu í þjónustu við nemendur.
Fram til þessa hafa nemar í iðngreinum verið sjálfir ábyrgir fyrir því að komast á námssamning, en með nýju reglugerðinni færist ábyrgðin á þessum námsþætti frá nemanum og yfir á skólana sjálfa. Skólarnir bera ábyrgð á að finna vinnustað þar sem neminn fær leiðsögn og æfingu við raunaðstæður.
Önnur breyting er sú að ef ekki tekst að koma nema á samning hjá iðnmeistara tekur svokölluð skólaleið við þar sem skólinn þarf að sjá til þess að neminn fái nauðsynlega þjálfun jafnvel á fleiri en einum vinnustað.
Þriðja breytingin er sú að horft verður til hæfni nemans við ákvörðun um lengd vinnustaðanáms. Skilgreindir hafa verið hæfniþættir fyrir hverja námsgrein og þarf nemi að ná tökum á þeim handbrögðum sem þar eru tilgreind. Vinnustaðanámið verður því mun markvissara en verið hefur og nemar hafa tök á því að útskrifast fyrr en áður.
Drög reglugerðarinnar voru birt á Samráðsgátt stjórnvalda í desember sl. og hafa nú verið endurskoðuð,
sjá texta reglugerðarinnar hér. Hún mun taka gildi 1. ágúst nk. og mun ráðuneytið vinna náið með hagsmunaaðilum að frekari þróun verkferla er henni tengjast sem og skipulagi náms.
Mynd: úr safni
-
Frétt4 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni5 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni7 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni5 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or6 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn6 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanLandslið kjötiðnaðarmanna mætir í MK, opið hús um helgina






