Frétt
Norrænir ráðherrar auka samstarf til að tryggja fæðuöryggi – Svandís: „…við þurfum nýja sýn á matvælaframleiðslu“

Norrænir matvælaráðherrar á fundi í Tromsö 22. júní 2022.
F.v. Anna-Caren Sätherberg Svíþjóð, Árni Skaale Færeyjum, Antti Kurvinen Finnlandi, Svandís Svavarsdóttir Íslandi, Karl Tobiassen Grænlandi, Magnús Rasmussen Færeyjum, Rasmus Prehn Danmörk, Bjørnar Selnes Skjæran Noregi, Fredrik Karlström Álandseyjum, Torfi Jóhannesson skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar. Fyrir miðju: Sandra Borch Noregi (gestgjafi)
Fundur matvælaráðherra í norrænu ráðherranefndinni héldu sinn árlega fund í Tromsö í Norður-Noregi 22. júní s.l. Ráðherrarnir 10 lýstu yfir miklum vilja til að efla samstarf milli Norðurlandanna til að bregðast við áhrifum Úkraínustríðsins á fæðuöryggi landanna.
Ráðherrarnir stýra málaflokkum landbúnaðar, sjávarútvegs, matvæla, skógræktar og sjálfbærni. Viðfangsefni fundarins voru þau áhrif sem verðhækkanir fæðu, orku og áburðar hafa haft fram til þessa á Norðurlöndum. Einnig var rætt til hvaða ráðstafana þurfi að grípa til að lágmarka áhrifin og tryggja fæðuöryggi.
Almennt voru ráðherrarnir sammála um að aukin áburðar- og prótínframleiðsla ásamt sjálfbærni í sjávarútvegi væru Norðurlöndunum mikilvæg til framtíðar.
Fleira hefur haft áhrif á fæðuöryggi Norðurlandanna síðustu ár en stríðsrekstur. Covid-19 heimsfaraldurinn leiddi í ljós að aðfangakeðjur Norðurlandanna eru viðkvæmar og háðar erlendu vinnuafli, innfluttum matvælum og fóðri. Sumarið 2018 var einnig með eindæmum þurrt og sýndi vel þær áskoranir sem landbúnaðurinn stendur frammi fyrir þegar loftslag breytist.
„Það sem eitt sinn hljómaði sem vísindaskáldskapur er veruleiki okkar í dag. Við erum ekki bara í kreppuástandi heldur tökumst við á við nýjan veruleika og við þurfum nýja sýn á matvælaframleiðslu. Ég legg áherslu á að við getum ekki látið kreppu eða önnur áföll vera átyllur til að fresta aðgerðum vegna loftslagsvandans,“
sagði Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra þegar hún ávarpaði samstarfsráðherra sína á fundinum.
Sjá nánar frétt Norðurlandaráðs.
Mynd: stjornarradid.is
-
Frétt3 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Frétt6 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni3 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni5 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni3 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn4 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars





