Sverrir Halldórsson
Múlakaffi hagnaðist um tæpar 140 milljónir króna
Hagnaður Múlakaffis ehf. á árinu 2013 nam tæpum 135 milljónum króna og var rúmum 24 milljónum hærri en árið á undan. Þetta má lesa úr samandregnum ársreikningi félagsins sem var birtur í ársreikningaskrá á föstudaginn.
Meginstarfsemi Múlakaffis og dótturfélaganna GJ veitinga ehf. og KH veitinga felst í mötuneytis- og veitingarekstri ásamt veisluþjónustu. Eini eigandi félagsins er Jóhannes Stefánsson.
Bókfærðar eignir móðurfélagsins nema 429 milljónum króna en eignir samstæðunnar nema 754 milljónum króna. Stærstur hluti eigna samstæðunnar er fasteignir en þær eru metnar á 325 milljónir króna og bílar, innréttingar, áhöld og tæki eru metin á 754 milljónir, að því er framkemur á visir.is.
Veitingastaðurinn Múlakaffi er í Hallarmúla. Á vefsíðu fyrirtækisins segir að þangað komi daglega hátt í 300 gestir í morgunmat, hádegismat, kaffi eða kvöldmat. Múlakaffi rekur einnig veisluréttaþjónustu og undirbýr mat fyrir smáa viðburði sem stóra.
Múlakaffi rekur veitingasalinn í Vodafonehöllinni á Hlíðarenda og Versali við Hallveigarstíg. Þá rekur Múlakaffi mötuneyti Eimskipa, mötuneyti í Borgartúni 7, mötuneyti í Tollhúsinu, mötuneyti hjá Hafró, mötuneyti lögreglunnar í Reykjavík og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Daglega borða að meðaltali um 800 manns í þessum mötuneytum.
Í gegnum dótturfélög sín á Múlakaffi svo veitingastaðinn Nauthól og Hörpudisk og Kolabrautina í Hörpu.
Mynd af Jóhannesi: skjáskot úr myndbandi
Greint frá á visir.is
![]()
-
Keppni5 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Íslandsmót barþjóna4 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
-
Frétt3 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Markaðurinn3 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNý mathöll, fleiri verslanir og vinsælir viðburðir auka aðsókn í Smáralind





