Viðtöl, örfréttir & frumraun
Matarmarkaður Íslands í Hörpu um helgina, fjölbreyttur markaður fyrir veisluborðið og jólagjafir
Matarmarkaður Íslands verður haldinn í Hörpu um helgina 13. og 14. desember og lofar fjölbreyttu vöruúrvali, notalegri stemningu og beinum tengslum neytenda við íslenska matvælaframleiðslu. Markaðurinn er opinn frá klukkan 11:00 til 17:00 báða daga, en á sunnudeginum verður opnað fyrr, klukkan 10:00, fyrir þau sem eiga erfitt með að fara um í fjölmenni og vilja njóta markaðarins í rólegra umhverfi.
Á Matarmarkað Íslands koma saman söluaðilar af öllu landinu, bændur, sjómenn og smáframleiðendur sem kynna afurðir sínar beint fyrir gestum. Vöruúrvalið er afar fjölbreytt og þar ættu flest að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem er á veisluborðið um jólin eða sem vandaða og persónulega jólagjöf. Matarhandverk nýtur sívaxandi vinsælda og er gjöf sem sameinar gæði, sögu og ástríðu þeirra sem standa að baki vörunni.
Skipuleggjendur hvetja fjölskyldur til að gefa sér góðan tíma á markaðnum og fara á milli framleiðenda. Slow Food Ísland verður með bingó fyrir börn, en markmiðið er að vekja áhuga yngri kynslóðarinnar á uppruna matvæla, innihaldi þeirra og þeirri vinnu sem liggur að baki hverri vöru.
Meðal bænda sem taka þátt á markaðnum eru framleiðendur frá Brúnastöðum í Fljótum, Knarrartungu á sunnanverðu Snæfellsnesi, Háafelli í Hvítársíðu, Lindarbrekku í Berufirði, Leirulæk í Borgarfirði, Neðri Brekku í Dölum, Vallanesi á Fljótsdalshéraði, Ríp í Hegranesi, Hrauni á Skaga, Gunnarsstöðum í Þistilfirði, Syðra Holti í Svarfaðardal og Löngumýri á Skeiðum. Þá verða einnig villisveppabændur frá Flateyri á svæðinu, auk rúmlega fjörutíu annarra framleiðenda, þar á meðal sjómanna og smáframleiðenda víðs vegar að af landinu.
Sérstakt er að segja frá fjölbreyttum bakgrunni þeirra sem mynda svokallaða matarmarkaðsfjölskyldu. Þar má finna bændur, sjómenn og smáframleiðendur af erlendum uppruna, meðal annars frá Þýskalandi, Póllandi, Ítalíu, Bandaríkjunum, Argentínu, Palestínu, Grænlandi, Kólumbíu, Túnis, Mexíkó, Grikklandi, Japan, Danmörku og Kenía. Þessi fjölbreytni endurspeglast í vöruúrvali markaðarins og styrkir íslenska matarmenningu enn frekar.
Skipuleggjendur lýsa stolti yfir Matarmarkaði Íslands og þeim framleiðendum sem hafa tekið þátt í gegnum árin og þeim sem leggja leið sína í Hörpu um helgina. Margir leggja á sig mikla vinnu og langt ferðalag til að vera með og nú er boltinn hjá neytendum. Vonast er til að sjá áhugasama gesti alla helgina sem vilja heyra sögurnar á bak við vörurnar, kynnast ástríðu framleiðenda og sýna stuðning sinn, hvort sem það er með góðum orðaskiptum eða einfaldri fimmu yfir borðið.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Markaðurinn5 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn4 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Keppni4 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn3 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Keppni4 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýtt frá Lavazza | Qualità Oro Dark Roast




