Markaðurinn
Magnaðir notkunarmöguleikar Thermomix
Eldhústöfrar ehf., dreifingaraðili Thermomix á Íslandi, hefur opnað sýningareldhús í Síðumúla 29 í Reykjavík þar sem boðið er uppá kynningar og matreiðslunámskeið. Thermomix er framleitt af þýska fyrirtækinu Vorwerk, sem stofnað var árið 1884 og er þekkt fyrir framleiðslu á hágæða heimilistækjum. Thermomix kom fyrst á markað 1961 og hefur því verið í fararbroddi í eldhústækni í yfir fimm áratugi og notið mikilla vinsælda um allan heim.
Allt til staðar í einu tæki
Eigendur Eldhústöfra ehf., Berglind og Rebekka, hafa báðar notað vélina í á annað ár og líkar stórvel. Tækið hefur á valdi sínu marga notkunarmöguleika; það vigtar, hrærir, blandar, saxar, malar, þeytir, hnoðar, gufusýður og eldar með nákvæmri hita- og tímastillingu. Hátt í tvö hundruð uppskriftir fylgja vélinni, bæði í uppskriftarbók og eins á stafrænum kubbi sem smellt er utan á vélina sem er með stafrænum skjá. Með því að nettengja vélina er svo hægt að bæta um betur og nálgast þúsundir uppskrifta sem berast á skjá vélarinnar.
Magnaðir notkunarmöguleikar
Fyrir utan að vera öflugur blandari, mixari og hrærivél er Thermomix með innbyggða vigt og nákvæma hitastýringu frá 37°C upp í 120°C. Hraðastillingarnar eru tuttugu, frá 40 rpm upp í 10.600 rpm. Thermomix , hrærir, saxar og malar og það er t.d. einstaklega þægilegt að vinna pestó, chutney, purée, kryddolíur, majones og kaldar sósur í Thermomix svo eitthvað sé nefnt og útkoman er alltaf fullkomin.
Thermomix kynning
Boðið er upp á heimakynningar og kynningar á vinnustöðum en einnig er hægt að fá að sjá og kynnast Thermomix í sýningareldhúsi Eldhústöfra ehf. í Síðumúla 29 í Reykjavík. Thermomix er vel þekkt í eldhúsum matreiðslumanna út um allan heim en nokkrar umsagnir matreiðslumanna má sjá hér.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á facebook síðunni Thermomix á Íslandi, á heimasíðunni eldhustofrar.is eða í síma 696-7186.
-
Markaðurinn5 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn6 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni4 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði





