Vertu memm

Markaðurinn

Ljúffengar bollur með Rice Krispies miðju frá Berglindi Hreiðars – Vídeó

Birting:

þann

Ljúffengar bollur með Rice Krispies miðju frá Berglindi Hreiðars

Eitt af því skemmtilega við bolludaginn er sú staðreynd að bollurnar verða sífellt fjölbreyttari eftir því sem árin líða.

Hugarflug bakaranna fær gjarnan að leika lausum hala í kringum þennan skemmtilega dag og það á svo sannarlega við um þessar bollur sem Berglind Hreiðarsdóttir, hjá Gotterí og gersemum á heiðurinn af.

Vatnsdeigsbollur með krispí Rice Krispies miðju er eitthvað sem við þurfum öll af prófa.

Vatnsdeigsbollur með Rice Krispies miðju

Vatnsdeigsbollur

360 ml vatn

180 g smjör

200 g hveiti

1 tsk. lyftiduft

¼ tsk. salt

3 egg (160 g)

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 180°C.

2. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og leggið til hliðar.

3. Pískið eggin í skál, vigtið og geymið. Ef eggin eru lítil gæti þurft aðeins meira en 3 egg.

4. Hitið vatn og smjör saman í potti þar til smjörið bráðnar og leyfið aðeins að sjóða, slökkvið þá á hellunni.

5. Setjið þurrefnin saman við og hrærið vel þar til „smjörbolla“ myndast.

6. Færið þá deigið yfir í hrærivélarskálina og hrærið rólega með K-inu þar til mesti hitinn er farinn út því.

7. Bætið þá eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið áfram saman.

8. Setjið þá kúfaða matskeið á bökunarpappír fyrir hverja bollu (ég notaði litla ísskeið) og bakið í 30-35 mínútur eða þar til bollurnar verða vel gylltar. Alls ekki opna ofninn til að kíkja á þær/botninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur því þá eru meiri líkur á því að þær falli.

9. Leyfið bollunum að kólna, skerið þær í sundur og hefjist handa við fyllingarnar (sjá hér að neðan).

Rice Krispies miðja

150 g Síríus suðusúkkulaði

40 g smjör

150 g sýróp (í grænu flöskunni)

100 g Rice Krispies

Aðferð:

1. Hitið Síríus suðusúkkulaði, smjör og sýróp saman í potti þar til bráðið, leyfið að bubbla í smá stund og slökkvið síðan á hellunni og leyfið hitanum aðeins að rjúka úr blöndunni.

2. Blandið Rice Krispies næst saman við og setjið síðan væna matskeið af hrísblöndu ofan á neðri helminginn á hverri bollu.

Veisluþjónusta

Banana rjómafylling

400 ml rjómi

1 stór banani (eða 2 minni)

Aðferð:

1. Þeytið rjómann og skerið banana í litla bita, vefjið þeim saman við rjómann með sleikju.

2. Setjið vel af bananarjóma ofan hrískökumiðjuna og lokið bollunni þá með efri hlutanum og setjið karamellu + Síríus karamellukurl ofan á (sjá uppskrift að neðan).

Karamella og skraut

150 g sykur

60 g smjör við stofuhita

80 ml rjómi

½ tsk. salt

Síríus karamellukurl

1. Bræðið sykurinn á pönnu, bætið smjörinu saman við og hrærið vel þar til bráðið og bubblar.

2. Hellið þá rjómanum saman við, hrærið áfram vel og leyfið að sjóða saman í um hálfa mínútu, slökkvið þá á hellunni, bætið saltinu saman við og hellið karamellunni yfir í skál. Leyfið henni að ná stofuhita, við það þykknar hún.

3. Setjið kúfaða teskeið af karamellu á hverja bollu og stráið síðan Síríus karamellukurli yfir til skrauts.

4. Ef karamellan bíður lengi og verður of þykk hjá ykkur þá má setja hana í örbylgjuofn í um 15 sekúndur á meðallágum hita og hræra hana upp aftur.

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið